Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

blessuđ blíđan....

25. apríl 2007 klukkan 15:22
Úti er æðislegt veður, 8 stiga hiti, hálfskýjað og 6 m/sek. Ég er að komast í þvílíkt "garðastússstuð" langar helst til að fara að hreinsa til í beðum og sækja mold og stússast eitthvað....EN það er varla þorandi því eflaust á eftir að koma hret og þá er ekki gott að vera búin að rífa ofan af fjölæringunum......maður þarf semsagt að bíða í mánuð í viðbót. Ég gæti hins vegar farið að huga að því að gera kartöflugarðinn kláran fyrir tætingu og svo gæti ég líka verslað mér kartöfluútsæði......Svo gæti ég líka tekið fram slönguna og kústinn og þvegið gluggana að utan.....já, já, ég hef næg verkefni í góða veðrinu.

Mataræðið er í gúddí: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani í morgunmat, ýsa og grænmeti í hádeginu, appelsína núna seinnipartinn, grænmetissúpa í kvöldmat og restin af kvöldmatnum, ávaxta, - brauð, -fitu - og mjólkurskammti í saumó í kvöld.
Ekkert nammi, enginn sykur.

Fór í ræktina í morgun og í heilsubótargöngu í hádeginu.
æ viltu ekki skipta um veður, hér er rok og rigning :( Hefði verið gott að fara út að ganga ef veðrið hefði verið betra þá hefði ég gert það ekki spurning. Njóttu góða veðursins.
#1
25. apríl 2007 klukkan 16:55
Vááááá æðislegt!!
Bara hálft kíló eftir í sextíu og eitthvað tölurnar og svo stutt eftir í endamarkmiðið. TIL HAMINGJU.

Skil þig svo vel, þegar sólin hækkar á lofti og birtan helst lengur fyllist maður auka orku og framkvæmdargleði og ekki skemmir að það er nú bara ágætis líkamsrækt að stússa í garðinum.

Kveðja Drekinn stóri
#2
25. apríl 2007 klukkan 21:51

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.