Vá æðilsegt til hamignju með þennan frábæra árangur :))) Þú ert aleg rosalega dugleg.
Gangi þér áfram svona vel dúllan mín þetta er alveg að verða búið hjá þér júhú fiddfíú.
3,5 eftir........
24. apríl 2007 klukkan 21:35
Ekki fór það þannig að ég færi í Garðabæinn, það vannst bara ekki tími til þess. Þess í stað skellti ég mér á sundlaugarvigtina, eins og ég sagði fyrir viku þá tek ég þeirri vigt með vara. Stóri sannleikurinn kemur í ljós þegar ég fer í vigtun í Garðabæinn, sem verður vonandi í næstu viku. En staðan er semsagt svona, aðeins 3,5 kg eftir!!!! Ótrúlegt alveg, þetta er eitthvað svo lítið mál núna, eins og brennslan sé á fullu, ég borða og borða 100% eftir danska, ekkert nammi eða sykur, bara 100% rétt mataræði. Mér líður alveg stórvel, svo er þessi hreyfing að gera sitt gagn þó ég sé bara að fara fast í líkamsrækt þrisvar í viku og göngutúra svona hér og þar....þetta virkar og hentar mér vel, alveg greinilega.
Ég hef líka dregið stórlega úr kaffidrykkju, sérstaklega í vinnunni, fæ mér frekar te en ég er gjörsamlega dottin í tetegund sem fæst í Samkaup (lífrænu deildinni) og heitir Clipper og fást margar bragðtegundir af því...t.d. lakkrís, piparmintu, appelsínu...og svona mætti lengi telja.
Ég hef líka dregið stórlega úr kaffidrykkju, sérstaklega í vinnunni, fæ mér frekar te en ég er gjörsamlega dottin í tetegund sem fæst í Samkaup (lífrænu deildinni) og heitir Clipper og fást margar bragðtegundir af því...t.d. lakkrís, piparmintu, appelsínu...og svona mætti lengi telja.
Frábært hjá þér. Ég verð að segja að ég vil ekki hugsa þannig að þetta sé að verða búið, því þetta er rétt að byrja. Ég get ekki hugsað mér að maður fari að safna umframkílóum eftir aðhaldið í þeim danska. Ég held að þegar maður er búinn að finna rétta taktinn þá VERÐI að halda sér í þessu matarræði og ekki fara aftur í gamla farið því þá detti inn 10 grömm hér og 20 grömm þar og svo framvegis. Ef ég reikna út mín umframkíló síðustu 26 árin eða frá því að yngsta barnið mitt fæddist, þá er þetta bara þynging upp á 1 kíló á ári sem gera rúm 90 grömm á mánuði. Áður en maður veit af eru fötin farin að þrengjast og maður verður að kaupa sér stærri til að líta sæmilega út. Hin þröngu eru sett inn í skáp og ég ætla að nota þau aftur, en von bráðar þarf aftur að bæta í skápinn og kaupa ný sem eru aðeins víðari. Þess vegna segi ég það við þig kæra Bláklukka að við erum ekki búnar þegar kjörþyngd er náð, við erum bara búnar að ná því takmarki að lifa í nýjum lífsstíl. Já nú er komið nóg bull hjá mér í dag. GAngi þér vel, Mína
#3
25. apríl 2007 klukkan 07:59
Já, ég er sammála Mínu vinkonu minni, hún hefur lög að mæla. Að komast í kjörþyngd er aðeins áfangi.....;)
Takk fyrir kommentin!
Takk fyrir kommentin!
#4
25. apríl 2007 klukkan 08:32
Ótrúlega góður árangur, sammála því að það að komast í kjörþyngd er áfangi (merkur áfangi) en það reynir líka á að halda sér í kjörþyngd. Þú ert svo meðvituð að þú ferð létt með þetta :)
#5
25. apríl 2007 klukkan 10:23
Frábært hjá þér!! öfunda þig að dugnaðinum!! ;)
Kv. úr blíðunni að austan..
Kv. úr blíðunni að austan..
#6
25. apríl 2007 klukkan 12:26
Jú gó görl!!
Kv. Margrét...