Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Nokkrir punktar

23. apríl 2007 klukkan 21:08
Bara svona til að forðast allan misskilning þá er rétt að benda á að þessi tíu fjöll sem við ætlum að ganga á í sumar eru sum hver ekki mjög há.......en heita samt fjöll eða múlar Hlæjandi

Kosningaspáin mín er hér  Glottandi.....ég reyndi að vera raunhæf og "hlutlaus" í þessari spá minni.....

B listi - Framsóknarflokkurinn 12 %
D listi - Sjálfstæðisflokkurinn 38 %
E listi - Baráttusamtökin 1 %
F listi - Frjálslyndir 5 %
I listi - Íslandshreyfingin 4 %
S listi - Samfylkingin 21 %
V listi - Vinstri grænir 19 %

Varðandi allt annað og háalvarlegt, ég er að spá í að fara suður á Garðatorg annað kvöld í vigtun.....
Mataræðið og hreyfingin eru á réttu róli hjá mér, allt í rútínu.

Það verður að segjast eins og er að þessi vetur hefur einkennst af veikindum, allt í kring, toppnum var náð í dag þegar hringt var úr skólanum og Stefán Snær orðinn veikur, með mikinn hita og virkilega slappur. Það er nú mikið sagt þegar gaurinn liggur upp í rúmi og horfir ekki einu sinni á dvd.
Hæ sæta stóra systir, hlakka til að ganga með ykkur í sumar.... sjáumst fljótlega.....lokaskil hjá mér eru 4. maí þannig að eftir það fer ég kannski á einhvern þvæling, þó þarf ég að gefa mér smá tíma í að undirbúa kynningu á ritgerðinni........
Knús og kossar til allra
#1
24. apríl 2007 klukkan 12:24
 
Magga
Æi, elsku kallinn. Ekki gaman að vera svona veikur.

Krossa putta fyrir þér í kvöld...ætla að hugsa mjög létt til þín! :)

Kv. Magga
#2
24. apríl 2007 klukkan 13:24
Mikið eruð þið dugleg að ganga á fjöll. Það er einmitt á stefnuskránni hjá okkur hjónunum að vera dugleg að fara í fjallgöngur í sumar. Takk fyrir peppið á síðunni minni, jú það er góð tilfinning að vera 60 og eitthvað. Ekki mjög langt í að þú sjáir þannig tölu líka.

Kveðja
Drekinn stóri
#3
24. apríl 2007 klukkan 17:57
Það verður gaman að sjá hve nálægt þú verður í spánni :D
#4
24. apríl 2007 klukkan 18:37

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.