Sunnudagskvöld
22. apríl 2007 klukkan 21:42
Þá er helgin á enda og ný vinnuvika hefst á morgun. Við höfum afrekað heilmiklu um helgina, fórum t.d. í sund í gær og í dag, skruppum til Reykjavíkur á vorútsölu í Regatta og versluðum heilan helling. Gerðist líka svo fræg að fara á Ning´s og fékk mér "danskan" rétt, valdi kjúklingabaunaréttinn, hann var fínn. Seinni partinn í dag og í kvöld hefur verið gestagangur, sem er alltaf jafn gaman; Palli, Inga Dóra, Brynjar Snær, mamma, pabbi, Árni, Sigríður, Ása, Siggi, Kristín og Arnar, litu öll við....ekki þó öll á sama tíma.
Mataræðið hefur verið því sem næst 100% í lagi, hef þó reyndar svindlað aðeins en hef engan rosalegan móral yfir því
Svo styttist í kosningar og spennan alveg gífurleg, alltaf gaman að spá í stöðuna og fylgjast með umræðunni. Ég hef verið að velta því fyrir mér að gefa út mína spá, um hver úrslitin verða og þá á ég við kosningarnar, ekki enn kominn tími á spá varðandi júróvísjón....hef ekki enn heyrt öll lögin. Semsagt ég sé fram á skemmtilegt júróvísjón/kosningakvöld - barnvænt að sjálfsögðu.
Kosningaspáin kemur innan tíðar.........
Svo er það göngumarkmið fjölskyldunnar í sumar, 10 fjöll skulu það verða og við látum þig vita, Stína, þegar við förum Siglufjarðarskarðið
engin spurning!

Og 10 fjallgöngur VÁ vá..... ´það munar ekki um það, ég gæti ekki klifið eitt :)
Gángi þér vel vinan og hlakka til að sjá kosningaspánna.