Dugnaðurinn í þér þú verður búin að taka þessi kíló af fyrr en varir.
Hafðu það gott um helgina vinan.
bissí dagar....
19. apríl 2007 klukkan 22:27
Jæja mátti til með að henda inn smá bloggi.... Byrjuðum daginn í dag á því að skella okkur í fjallgöngu, ég Haukur og Stefán Snær, einnig komu Magga og Eyfi. Svakalega gaman hjá okkur, gengum á Varmalækjarmúlann, ótrúlega víðsýnt þaðan þó þetta sé ekkert hátt fjall. Það var sól og næstum logn, en kalt, mjög bjart yfir að líta en við sáum þó ekki Snæfellsjökul vegna misturs. Ferlega gaman.
Vorum síðan eitthvað að vesenast í garðinum og enduðum daginn á því að grilla með Ingu Dóru og Brynjari Snæ (Palli í útlöndum og Ástdís fyrir norðan). Jæja best að fara að leggja sig, er dauðþreytt eftir daginn

Gangi þér áfram svona vel.