Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

örblogg

18. apríl 2007 klukkan 08:36
Fór á sundlaugarvigtina í gær, útkoman var góð....-1,4 þessa vikuna. Veit þetta er kannski ekki marktækt en við eitthvað verð ég að miða.
Þetta lítur þá einhvernveginn svona út:



Ég ermjög ánægð með þetta. Jæja, nóg að gera þarf að vinna slatta en fer svo heim að leysa bóndann af á veikindavaktinni, jamm Þórður Logi er lasinn. Reyni að blogga á morgunn Glottandi
Takk fyrir kvittið og peppið!!!
Frábær árangur hjá þér! Til lukku :)
#1
18. apríl 2007 klukkan 15:57
Frábært hjá þér!! Ef þú vilt þá máttu koma á mína vigt...veit að hún vigtar 200 g meira en danska vigtin... :)

Gangi þér áfram svona vel!!!

Kv. Magga
#2
18. apríl 2007 klukkan 19:15
Váááá !!!! GLÆSILEGT hjá þér, ekkert smá flott að horfa á þessar tölur 16,4 kg farin (það eru nú ansi mörg smjörlikisstykki eða ca. 32 og hálft stykki). Nú eru ekki nema 4,2 eftir iss piss þú átt eftir að rúlla þeim upp.

Ég er viss um að ég fylgi fast á eftir þér á næstu mánuðum, ég held að núna sé í fyrsta sinn í langan tíma sem ég virkilega trúi því að ég geti þetta líka.

Kveðja Drekinn stóri
#3
18. apríl 2007 klukkan 22:59
KLAPP - KLAPP til hamingju með þetta vinan :)
Glæsilegt hjá þér og gangi þér vel .
#4
19. apríl 2007 klukkan 01:11
 
Silla
GLEÐILEGT SUMAR HVANNEYRINGAR....
Til hamingju með árangurinn í vetur Sigga mín... segi nú það sama og "drekinn stóri" 16,4 kg farin.... 4,2 eftir.. þau verða sko pís of keik..., hahhaha
DUGLEG DUGLEG DUGLEG...
Hafið það gott!
Silla.
#5
19. apríl 2007 klukkan 11:18
Vá frábært! Til hamingju!
Varðandi spurningu þína þá fasta ég með hópi og fylgi þeirri dagsetningu sem sett er, fyrsta sunnudag eftir páska. Annars langar mig að fasta fyrir páska og enda föstuna á páskadag, það væri nú alveg fyrirtak :) Mér skilst að þannig hafi það verið hjá hópnum en fólki þótt það erfitt í kringum fermingaveislurnar
Nú þarf ég að fara að standa mig jafnvel og þið Assa! knús, jaya
#6
19. apríl 2007 klukkan 12:43

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.