vigtunardagur í dag
17. apríl 2007 klukkan 09:36
Í dag er samkvæmt planinu vigtunardagur....en af því að "vigtaranir" eru hættir að koma í Borgarnes þá verður maður að gera aðrar ráðstafanir. Ég ætla því að leggja allt mitt traust á sundlaugarvigtina, þannig að þriðjudagar verða sunddagar. Eftir vinnu í dag mun ég því bruna í Borgarnes í sund og skella mér á vigtina.
Ég á alltaf í örlitlu basli með að klára kjötskammtinn minn en "ný" ddv vika hefst á morgun og því verð ég að hafa kjöt í kvöld, þó ég hafi haft kjöt (slátur) í gær.
Dagurinn hljómar svona:
Brauð, ostur, smyrja, sulta, 1/2 banani í morgunmat. 2 egg, tómatsúpa í hádeginu. Hakk og grænmeti í kvöld. Mjólkurskammtur og ávextir svona hér og þar yfir daginn.
Ég drekk ótrúlega mikið vatn þegar ég er í vinnunni, hef alltaf vatnsbrúsa við hendina sem tekur 650 ml en ég er yfirleitt búin með tvo slíka löngu fyrir hádegi! Þannig að ég mæli með því.
Hér er ótrúlega fallegt veður, sól, hiti 2°C, vindhraði 2 m/sek.
Verst að maður skuli ekki geta farið í einhverja útivinnu í dag.....nei, það er ekki í boði, er að undirbúa fyrirlestur sem ég ætla að halda á skógræktanámskeiði næsta föstudag
Talandi um námskeiðið, það verður hádegismatur í boði fyrir námskeiðsgesti og kaffi, vinnufélagi minn var að tala um að við þyrftum að kaupa bakkelsi með kaffinu....ég stakk upp á að hafa ávexti í skál fyrir þá sem vildu, það var tekið vel í það
ég verð því í góðum málum.
Ég á alltaf í örlitlu basli með að klára kjötskammtinn minn en "ný" ddv vika hefst á morgun og því verð ég að hafa kjöt í kvöld, þó ég hafi haft kjöt (slátur) í gær.
Dagurinn hljómar svona:
Brauð, ostur, smyrja, sulta, 1/2 banani í morgunmat. 2 egg, tómatsúpa í hádeginu. Hakk og grænmeti í kvöld. Mjólkurskammtur og ávextir svona hér og þar yfir daginn.
Ég drekk ótrúlega mikið vatn þegar ég er í vinnunni, hef alltaf vatnsbrúsa við hendina sem tekur 650 ml en ég er yfirleitt búin með tvo slíka löngu fyrir hádegi! Þannig að ég mæli með því.
Hér er ótrúlega fallegt veður, sól, hiti 2°C, vindhraði 2 m/sek.
http://ferdalagid.bloggar.is/
ferđalangur
Hæ! Hef ekki dottið inn hér áður en gott að lesa bloggið þitt:-) Gangi þér voð vel í dag!
#1
17. apríl 2007 klukkan 12:18
Sniðug hugmynd að hafa ávexti á námskeiðinu ekki hægt að hugsa sér betra snarl :)
Leitt að heyra að vigrtarráðgjafarnir skuli vera hættir í Borganesi.
Maður getur þá ekki skellt sér á fund í Borgarnesi á suður leið eins og ætlunin var ó jæja það verður að hafa það. Hef stundum verið í vandræðum með kjötskammtinn minn líka, því ég læt fisk ganga fyrir ef ég mögulega get.
Gángi þér vel í dag vinan og njóttu dagsins.

#2
17. apríl 2007 klukkan 15:48
Já maður saknar vigtaranna góðu. Á þjóðvegum landsins fer nú í hönd sá tími að vegir eru viðkvæmir og því ekki leyfilegt að hafa of mikinn öxulþunga. Víða meðfram þjóðvegum landsins bíða "helv....vigtararnir" eins og stundum er sagt. Þeir taka svo trukkana og vigta þá. Á sama tíma hverfa okkar vigtarar á brott eins og skipti engu máli hver okkar "öxulþungi" er á þessu vori. Já mér finnst þetta ekki í lagi, það þarf nauðsynlega að senda "helv..... vigtarana " á okkar slóðir aftur. Bara smá gys hjá mér
#3
17. apríl 2007 klukkan 17:42