Stutt vinnuvika framundan
16. apríl 2007 klukkan 08:49
Jæja, nú styttist í sumardaginn fyrsta en þá er ætlunin að skella sér í fjallgöngu. Mér líkar það vel að vikurnar séu brotnar svona upp með frídögum, ekki það að mér leiðist vinnan mín, nei, nei....svona frídagar inn á milli nýtast bara svo oft i eitthvað sem maður mundi annars ekki gera.
Venjulegur dagur framundan. Cherios, fjörmjólk, appelsína í morgunmat. Salat með 60 grömmum af kjúlla og 1 harðsoðið egg. Ætli ég sjóði ekki slátur í kvöld, fæ mér bara120 grömm af því, tel það sem unna kjötvöru til að friða samviskuna, borða soðnar rófur og blómkál með því. Ávextir og afgangur af mjólkurskammti hér og þar yfir daginn.

Tandoori er krydd, hmhm skrítið en þegar ég var að setja þessa uppskrift inn þá varð mér hugsað til þín Hallfríður mín.....var að pæla í hvort ég ætti að taka fram að þetta væri krydd.
#2
16. apríl 2007 klukkan 13:20
Það er aldeilis kraftur í þér kona :) skíði og nú fjallganga.
Fer í fjallgöngu þegar ég treysti mér til sem er nú ekki á næstunni.
Kannski eftir -20 kg.
Alltaf gaman að kíkja á þig og sjá matseðillinn enda fær maður ýmsar hugmyndir.
Fer í fjallgöngu þegar ég treysti mér til sem er nú ekki á næstunni.
Kannski eftir -20 kg.
Alltaf gaman að kíkja á þig og sjá matseðillinn enda fær maður ýmsar hugmyndir.
#3
16. apríl 2007 klukkan 19:26
hefur greinilega haft meiri trú á mér en heppilegt var og ákveðið að sleppa því. Þegar kemur að uppskriftum þarf ég mjög nákvæmar upplýsingar enda er eldamennska ekki mín sterkasta hlið. Endilega haltu áfram að setja inn hollar og góðar uppskriftir. Aldrei að vita nema maður byrji einhvern tíman að elda og geti þá nýtt sér þær:)
#4
16. apríl 2007 klukkan 22:01
Nammmmm!!!!!! Slátur er uppáhalds maturinn minn og alveg ábyggilega bráðhollt í litlum skömmtum einstaka sinnum. Svo er bara um að gera að borða vel af rófum með.
Takk fyrir innlitið
Kveðja Drekinn stóri
Takk fyrir innlitið
Kveðja Drekinn stóri
#5
16. apríl 2007 klukkan 22:32
Nú kem ég illa upp um vankunnáttu mína í eldamennsku og húsmóðurstörfum ekki satt:)
Girnileg uppskrift nefnilega og ekki spillir að hún virkar einföld og það þarf ekki þúsund hráefni eins og í svo mörgu.
Annars bara bestu kveðjur úr sól, próflestri og anti-ddv fæði í Köben:)