laugardagur
14. apríl 2007 klukkan 20:26
Ekki fórum við norður á skíði, fannst spáin fyrir seinnipartinn í dag ekkert spennandi.
Í staðin smurðum við nesti, bjuggum til kakó ("danskt") skelltum okkur í útivistargallana og brunuðum upp í Skorradal, nánar tiltekið í Stálpastaðaskóg. Veðrið var fínt, sólin kom meira að segja. Röltum um og borðuðum nestið. Þórunn, Sigurjón og Hörður Smári komu líka. Svona ekta skyndihugdetta og þetta var æðislegt.
Síðan skelltum við Þórunn okkur í sund í Borgarnes með Hörð og Stefán. Frábær dagur og 100% danskur.
Ohhh hvað Ísland hefur upp á mikið að bjóða, og svo er maður með hugann við útlönd, uss, uss, uss! Ég hef reyndar alltaf verið þeirrar skoðunar að maður eigi að ferðast erlendis á öllum öðrum tímum en á sumrin......
Höfum ekkert ákveðið hvert skal halda í sólarlandaferð eða á hvaða árstíma en allar hugmyndir vel þegnar. Hef bara einu sinni farið í svona sólarlandaferð og það var til Mallorca með Plúsferðum, gistum á hóteli sem hét Pil Lari Playa (minnir mig) líkaði stórvel og ekki spillti staðsetningin rétt við ströndina. Þetta var í september 2004 í upphafi kennaraverkfalls, Stefán Snær 8 ára og Þórður Logi bara hugmynd!
En að öðru, geggjaður tími framundan, Júróvísjón þættirnir norrænu byrjuðu í gær....ÁFRAM EIKI!

Ţórunn H
Já það má með sanni segja að dagurinn var yndislegur og norskar minningar létu á sér kræla í Stálpastaðaskóginum......ég var svo endurnærð eftir daginn að þegar heim kom smellti ég Evróvisjón geisladiskinum frá keppninni 2002 í spilarann og tek undir með þér Sigga mín: Áfram Eiki!!!!
#1
14. apríl 2007 klukkan 23:50