Játningar

Jæja, ekki þyngdist ég í þetta skiptið. Best að horfa á það jákvæða....300 grömm fóru. Þar með er þessu námskeiði lokið. Hérna koma nokkrar staðreyndir:
Á námskeiðinu sem var fyrir áramót fóru 9,7 kg. ca 746 grömm fóru á viku
Á milli námskeiða fóru 3,1 kg. ca 440 grömm fóru á viku
Á seinna námskeiðinu fóru 2,2 kg. ca 220 grömm fóru á viku
Samtals hafa því farið 15 kg á 30 vikum eða 500 grömm að meðaltali á viku.
Ég viðurkenni eitt hér og nú, ég hef ekki verið nógu öguð þessar síðustu tíu vikur. Hef talið mér trú um það að það sé OK að "svindla" aðeins af því að ég er svo dugleg (að mínu mati) að hreyfa mig.........gáfulegt? nei! Frá og með gærdeginum er ég komin í allsherjar sætindabindindi. Sykur er ekki góður fyrir mig! Hann er ógeð!
Varðandi nýja markmiðssetningu þá ætla ég að halda mig við það markmið sem ég var búin að setja mér í upphafi, 5,6 kg skulu fjúka til viðbótar og það fyrir 17, júní. Þann dag mun ég síðan endurskoða þetta allt saman. Það þýðir ekki að gefast upp þó að á móti blási, nú er málið bara að vera staðföst sem aldrei fyrr og stefna að þessu markmiði mínu. Ég fæ ekki að panta mér sólarlandaferð fyrr en 17 júní EF ég stend mig! Það gæti verið að ég muni bæta við verðlaunum á tímabilinu, ætla að hugsa það aðeins. Ég ætla mér að fara í það minnsta einu sinni í mánuði í vigtun suður en Kristín vigtarráðsgjafi bauð okkur Borgarnes konum það, svona í sárabætur.
Nú þarf ég bara að fá extra pepp frá ykkur lesendur góðir, þið haldið mér við efnið!
Alltaf gaman að sjá hverjir það eru sem "ramba" hingað inn og kvitta fyrir sig ![]()
Jú gó görl...!
Kv. Magga
klapp á bakið, nú tekst okkur að halda áfram