Páskafríið búið.....
10. apríl 2007 klukkan 08:30
Norðurferðin heppnaðist vel, ég skellti mér á skíði með báðum systrum mínum, systurdætrum og syni á páskadag. Það var alveg frábært, ágætt veður og færðin allt í lagi. Vorum síðan aftur mætt á svæðið klukkan tíu á annan í páskum og þá var veðrið enn betra og færið geggjað, við höfðum svæðið útaf fyrir okkur í góðan klukkutíma en þá bættist ein hræða í hópinn og síðan koll af kolli.
Við erum að gæla við að fara aftur um næstu helgi ef veðurskilyrðin verða þannig, þetta er svo gaman!
Mataræðið hefur verið svona og svona...ekki alveg í nógu góðum gír en ég tók ákvörðun í gær. Frá og með þessum degi er ég komin í nammibindindi, það hefur allt of mikið af sætindum farið inn fyrir mínar varir síðustu daga og mér líður ekki vel með það.
Síðasti vigtunardagur er í dag en ég skrifaði hérna í síðustu viku að ég mundi setja inn ný markmið, ég stend við það og ný markmið verða komin hér inn ekki seinna en annað kvöld. Hef hugsað heilmikið um þetta núna um páskana......jæja best að hætta í bili.
Eigið góða vinnuviku

Eftir að ég las bloggið þitt núna ætla ég líka í nammibindindi. Nú verður tekið á því.
Kveðja Drekinn