Páskafríiđ er alveg ađ koma
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag (skírdagur): Austan 5-10 m/s og slydduél suðaustanlands, en hægari og víða bjart veður annars staðar. Hiti 0 til 5 stig sunnanlands, en frost 1 til 7 stig fyrir norðan. Á föstudag (föstudagurinn langi): Austan 8-13 m/s með slyddu eða rigningu sunnanlands, en snjókomu síðdegis fyrir norðan. Heldur hlýnandi. Á laugardag: Sunnanátt með vætu um landið sunnanvert, en stíf austanátt fyrir norðan, einkum við ströndina, og snjókoma. Hiti 2 til 8 stig sunnantil, en nálægt frostmarki norðanlands. Á sunnudag (páskadagur): Suðvestanátt með skúrum, en gengur í hvassa norðanátt með snjókomu fyrir norðan þegar líður á daginn, en léttir til syðra. Kólnar í veðri. Á mánudag (annar í páskum): Minnkandi norðlæg átt og dálítil él í flestum landshlutum. Frostlaust syðst. Á þriðjudag: Suðlægar áttir með vætu og hlýnar. Spá gerð 03.04.2007 kl. 23:36 (tekið af www.vedur.is)
Mataræðið í dag: Cherios, fjörmjólk, appelsína í morgunmat. Ostur, egg, brauð, grænmeti í hádeginu. Pestókjúklingur í kvöld. Hádegisgangan verður á sínum stað.
Þegar ég las veðurlýsinguna hjá þér þá var mér hugsað til þess að ég varð vör við ýmislegt á þjóðveginum í dag hemm.... fellihýsi, hjólhýsi og húsbýla er vorið ekki bara komið þrátt fyrir él og frost!!! Bara gaman að þessu.
Þú stendur þig eins og hetja :)