Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

þriðjudagar eru vigtunardagar

03. apríl 2007 klukkan 08:57
Minn heittelskaði eiginmaður er kominn heim, eftir vel heppnaða ferð til Lundúna. Mikið er nú gott að vera búin að fá hann heim Brosandi 
Byrjaði daginn á því að fara í ræktina, fékk mér brauð, með camembert og sultu, 1/2 banana og kaffi í morgunmat. Laxasalat (er alveg húkt á því) og grænmeti í hádeginu, fiskibollur í kvöld. Þriðjudagar eru vigtunardagar hjá mér, það vill reyndar þannig til að það verður engin vigtun í Borgarnesi í dag heldur verður hún næsta þriðjudag og þá lokavigtun á þessu námskeiði. Eftir vinnu í dag fer ég í sund (eða í pottinn) í Borgarnesi en þó ekki á vigtina því ég ætla að láta námskeiðið klárast áður en ég fer að blanda annarri vigt í málið!

Ég hef ákveðið að eftir lokavigtun, næsta þriðjudag mun ég endurskoða markmiðið mitt, þ.e. að stefna að því að vera komin í 67 kg fyrir 17. júní. Er ekki viss um að ég vilji endilega verða svo létt, held það fari mér hreinlega ekki. Nú orðið finnst mér meira virði að standa mig í því að stunda líkamsrækt þrisvar í viku, manni líður svo vel af því!....en eins og ég sagði, þetta verður allt endurskoðað eftir viku.
Þú ert alveg hrikalega dugleg í ræktinni, stendur þig hreint út sagt frábærlega... :)

Um að gera að miða lokatölurnar við það sem maður er ánægður með...ég er stolt af þér hvað sem þú ákveður að gera! :)

Knús, Magga
#1
03. apríl 2007 klukkan 18:10

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.