Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

dimbilvika

02. apríl 2007 klukkan 09:00
Mikið er ég nú ánægð með það að það er að koma páskafrí!!!! Brosandi

Á laugardagskvöldið bauð ég Teddu, Ingu og Kela í mat og  eldaði ég Tandorri fisk:
1 kg. þorskbitar
2 1/2 dl fjörmjólk
olía
2 msk tandoori
1-2 tsk karrý
sítrónupipar
2 græn epli
2 bananar
1 dós ananasbitar
Eplin, olían, tandoori og karry velgt á pönnu mjólkinni hellt yfir og þá er banönum og ananas blandað saman við. Þorskbitunum raðað í eldfast mót og kryddaðir með sítrónupipar. Ávaxtagumsinu hellt yfir og osti stráð yfir ef maður vill. Bakað í ofni í ca hálftíma.
Bar þetta fram með byggi sem ég hafði kryddað með steinselju og sítrónu og setti smá olíu út í.

Dagurinn í gær einkenndist af afslöppun fyrir utan líkamsræktarbauk okkar Teddu. Eyfi og Magga buðu okkur Þórði Loga í kvöldmat mmmmm mjög góður hakkréttur og ofnbakaður kúrbítur með hvítlauk og rósmarín.
Dagurinn í dag: Cherios, fjörmjólk og 1/2 banani í morgunmat, skyrdrykkur og grænmeti í hádeginu, fiskur í kvöld.
Haukur kemur heim seinnipartinn eða í kvöld og verður örugglega glaður með að fá fisk.....
Bara nýtt útlit!!:) Girnó uppskrift væri nú flott að prufa þetta í fjarveru barnanna!!
#1
02. apríl 2007 klukkan 10:21
Namm, mér líst vel á uppskriftina þína! Verð að prófa hana við tækifæri. Og já, endilega settu inn link á síðuna mína :)
#2
02. apríl 2007 klukkan 14:25
namm þetta er örugglega nammi namm:).... ég var að lesa færslurnar þínar hér að neðan og mér sýnist þú nú afreka heilmiklu meiru en bara að hugsa um mat:):).... hafðu það gott í viku dymbils.... knús.....
#3
02. apríl 2007 klukkan 15:01
Takk kærlega fyrir síðast Sigga mín...frábært að fá ykkur í heimsókn... :) Voðalega hugsuðum við líkt í hádeginu í dag...ég var líka með skyrdrykk! :) Reyndar grænmetissúpu, en grænmeti var það! ;)

Mundu að þú ert frábær! :)

Knús, Magga
#4
02. apríl 2007 klukkan 16:10
Hæ :) Takk fyrir kommentið, við erum greinilega í sama 20 kg. pakka. Þú stendur þig rosalega vel ekki gefast upp! :) Jaya
#5
02. apríl 2007 klukkan 16:45
Girnileg uppskrift :) liggur við að maður fái bara vatn í munnin við að lesa bloggið hjá þér vinan.
Þú stendur þig frábærlega og ég held að þú verðir búin að losa þig við restina fljótlega.
#6
02. apríl 2007 klukkan 20:47

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.