vinnuvikan að verða búin
30. mars 2007 klukkan 11:27
Líf mitt gengur ekki út á neitt annað í dag sem og alla aðra daga að spá í mat, hreyfingu, hvíld, vinnu, barnauppeldi og heimilisstúss.
Morgunmatur eins og undanfarna morgna, matur hjá Ingu í hádeginu (kjöt, grænmeti), aftur kjöt í kvöld....hmhm ekki alveg eftir áætluninni þar sem ég ætlaði að hafa fisk á hverjum degi. Borða bara fisk í bæði málin á morgunn. Hér er rigningarúði, smá gola og hlýtt, ég ætla í hádegisgöngu í dag.
Varðandi sumarið þá er eitt komið á hreint, við ætlum að ganga yfir Fimmvörðuháls, búin að negla niður dagsetningu og alles. Reikna svo með að taka hluta af sumarfríinu í ágúst.
Helgin framundan, ætla bara rétt að vona að veðrið verði gott svo maður geti tekið góða göngutúra. Svo þyrfti ég eiginlega að stússa eitthvað í garðinum....hann er eins og ruslahaugur, þyrfti að tína rusl sem hefur fokið í hann, raka yfir lóðina og klippa.

Kannski á ég einhvern tíman eftir að ganga Fimmvörðuháls en það er ekki á næstunni.
En til hamingju með þessa áhvörðun.