Fimmtudagur
29. mars 2007 klukkan 08:28
Góðan daginn!
Ég skellti mér í stafgöngu með Þórð á bakinu eftir vinnu í gær, fór ekki nema rúma tvo kílómetra en je minn eini, það tók sko á, ég var í svitabaði á eftir.
Fór og lyfti í morgun, fékk mér síðan fjörmjólk, cherios og appelsínu í morgunmat, túnfiskur og grænmeti í hádeginu og kjúlli í kvöld.
Af okkur fjölskyldunni:
Haukur er að fara til London seinna í dag með nokkrum félögum sínum, það á að sjá tvo leiki þar og koma svo heim eftir helgi. Það verður örugglega mjög gaman hjá þeim.
Ætli ég taki því ekki bara rólega um helgina, mamma og pabbi kíkja á morgun en þau eru núna fyrir sunnan, fóru á tónleikana með Sir Cliff. Þau ætla að gista og kannski fer Stefán með þeim norður á laugardaginn í heimsókn til föðurfólksins en hann segist þurfa að hjálpa til við að smíða borð í gróðurhúsin hjá ömmu sinni. Svo er spurning hvað maður gerir um páskana, það er ekkert planað....