Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

27. mars 2007 klukkan 21:09
Alveg reyndist ég sannspá, engir stórir ddv sigrar, þyngdaraukning er staðreynd dagsins 500 grömm upp en það er líka bara mér að kenna og engum öðrum. Ég gæti kennt ráðstefnunni og flakkinu á mér um eða þá henni Rósu frænku sem er alveg að fara að koma í heimsókn en það er ekki rétt, engar sjálfsblekkingar hér því þetta er mitt líf, minn líkami og ÉG ræð ferðinni!!!Við vorum bara 8 sem mættum í vigtun og þrjár sem sátum fund. Fundurinn var flottur, við vorum allar á því að taka vel á því næstu tvær vikurnar og þ.á.m. eru páskarnir en þá verður maður bara mjög virkur í eldhúsinu, mallar eitthvað nýtt og spennandi. Það er kannski rétt að taka það fram að þó ég hafi þyngst þá finnst mér eins og það hafi verið öfugt.

Elín þetta Hestfjall sem ég tala um í æfingaráætluninni er hér rétt hjá Hvanneyri ....en ég kem nú samt í kaffi við tækifæriHlæjandi

Ég fer ekki í ræktina í fyrramálið en hádegisgangan verður á sínum stað. Ég pantaði mér bók í dag.... er hún nú alveg að tapa sér myndu einhverjir hugsa...og segja!Hef trú á að þetta geti verið fróðleg lesning og væri sniðugt að styðjast við hana þegar fer að vora.
 


 
Magga
Úff...titill bókarinnar er nógu "scary" einn og sjálfur! Nú fá eftirstandandi kíló kalt vatn milli skinns og hörunds og huga að því að fara að pakka niður í töskur og láta sig hverfa.

Koma svo Sigga...Þú getur þetta dúllan mín! :)

Knús, Magga
#1
27. mars 2007 klukkan 21:19
Stundum er það nú bara þannig að maður sjálfur er að klikka... þó að freistandi sé að benda á hinar og þessar "góðar" afsakanir.

Haltu bara áfram að vera eins dugleg og þú getur... og ekki leyfa sjálfri þér að pirrast eitthvað á því þó að dagurinn sé ekki alltaf 100%

Kv Lena
#2
27. mars 2007 klukkan 22:30

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.