Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

andleysi og ddv leti!!!!

25. mars 2007 klukkan 21:19
Af almennri skildurækni þá skelli ég hér inn einni færslu, er eitthvað svo andlaus. Hef eiginlega ekki gert nokkurn skapaðan hlut í dag annað en að taka á móti gestum, sem er reyndar bara gaman en ég fór hins vegar ekkert út í dag....sem er mjög óvenjulegt.
Austurferðin gekk vel, ráðstefnan áhugaverð, margt fróðlegt kom þar fram sem ég ætla nú ekki að vera að tíunda hér. DDV var í klúðri því það var ekki hægt að fá mikið grænmeti með matnum þarna og ávextirnir voru af skornum skammti  í morgunmatnum, annars var þetta OK. Að lokinn ráðstefnu fór ég til frænku minnar. Við tókum rúnt um Egilsstaði, aðallega til að skoða hús sem verið er að byggja en þvílík uppbygging sem á sér stað þarna, alveg meiriháttar. Fórum í tískuvörubúð...fullt af fallegum fötum og SKÓM, keypti reyndar ekkert Svalur. Elduðum rauðrófubuff og borðuðum helling af grænmeti, drukkum rauðvín og skelltum okkur á kaffihús og fengum okkur köku (hmhmhmhhm) og kakó með straw út í og okkur varð nú aldeilis ekki kalt af því. Spjölluðum svo eitthvað frameftir. Fór svo með flugi heim morguninn eftir og þvílík ókyrrð, úff var mjög fegin þegar vélin var lent eftir allan hristinginn. Svo er nú alltaf notalegt að koma heim til karlanna sinna.
Það má segja að restin af laugardeginum og dagurinn í dag hafi einkennst af: EKKI DDV!!!!!!!!!!! EN það þýðir ekkert að pirra sig neitt á því, ég ætla að taka næstu viku með trukki, fiskur og hreyfing daglega.

Stefán Snær skemmti sér vel í badmintonbúðunum að Laugum í Sælingsdal, skipuleggjendur og staðarhaldarar eru greinilega á réttri braut, þetta var ÆÐI segir hann. Síðan var hann svo glaður þegar hann kom heim, þakkaði mér rétt áðan mjög innilega fyrir það hvað ég er góð mamma Saklaus það er alltaf gaman að fá svoleiðis komment frá 11 ára gömlum syni, segi nú ekki annað.
Æ það er ljúft að eiga góðar stundir með vinum og ættingjum!! Ég var líka heldur róleg á DDV um helgina!!:o mössum bara þessa viku!!;)
#1
26. mars 2007 klukkan 10:02

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.