Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

og áfram heldur Pollýönnuleikurinn áfram

21. mars 2007 klukkan 19:55
Jú svei mér þá, ég held það sé eitthvað í loftinu sem orsakar þyngdarmissisleysið!!!! Eru ekki lægðir allt um kring?
Ég er í brjáluðum DDV-gír, ætla sko að standa mig þessa viku. Þó þessi ráðstefna sé þá ætla ég ekki að láta hana koma mér úr jafnvægi, held mig við grænmetið, ávextina og hæfilega skammta.

Fer suður í fyrramálið og þaðan með flugi austur á Egilsstaði, ráðstefnan byrjar um hádegið og stendur þar til síðdegis á föstudag. Þá ætla ég að kíkja á Júlíu frænku, gista hjá henni og fer svo með flugi á laugardaginn.
Ég var samt að klikka á einu, ég gleymdi að kaupa mér lopa til að byrja á lopapeysunni sem ég ætla að prjóna mér....ARG! Það hentar nefnilega sérlega vel þegar maður fer á svona ráðstefnur að hafa prjóna í farteskinu.

Þórður Logi er með hita, held það tengist tanntöku eða öllu heldur jaxlatöku. Stefán Snær er hress hann er að fara í íþróttabúðir með badmintonhópnum sínum um helgina, svakastuð.

Ég blogga líklega ekkert fyrr en um helgina, þangað til....farið vel með ykkur og haldið fast í DDV! OK, og koma svo!!!!!! VIÐ MÖSSUM ÞETTA STELPUR!!!!
 
Magga
Gat ekki haft "Enga athugasemd" lengur! ;)

Já, nú er komið að því!! Spýtum í lófana og spörkum í rassa (eða það sem eftir er af þeim! ;) ). Ekki nema 2 vigtanir eftir, þannig að þá er bara að standa sig!!

Knús, Magga...
#1
25. mars 2007 klukkan 09:13
já þú ert ekkert að gefast upp:) bara að halda ótrauð áfram:).... það var nú gott að þú tókst ekki prjónana með ég er svo á móti prjónandi konum á fundum og ráðstefnum ...verð alveg græn af geðillsku.... hahahahahahaha.....knús....
#2
25. mars 2007 klukkan 14:37

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.