Pollýönnuleikurinn ógurlegi
20. mars 2007 klukkan 21:10
100 grömm niður! Ekki slæmt ha?..... verra ef það hefðu verið 100 grömm upp.
Ég er bara mjög sátt við árangur vikunnar, fór á árshátíð án þess að spá og leyfði mér eitt og annað....hmhmhmhm. EN núna tek ég á því, reyndar er ráðstefna á Eiðum á fimmtudag og föstudag en ég geri mitt besta.
Ég er bara mjög sátt við árangur vikunnar, fór á árshátíð án þess að spá og leyfði mér eitt og annað....hmhmhmhm. EN núna tek ég á því, reyndar er ráðstefna á Eiðum á fimmtudag og föstudag en ég geri mitt besta.
Allt niður er jákvætt!!:) margt smátt gerir eitt STÓRT!!!!!:D
#2
21. mars 2007 klukkan 16:32
OK. Þá er þetta bara loftslagið sem gerir þetta. Ég var nefnilega bara með 100 grömm og ekkert svindl. Er ekki eitthvað í loftinu kring um okkur?
#3
21. mars 2007 klukkan 18:49
Í sambandi við pælingar síðustu færslu, þá er mjög mikið vit í því sem þú ert að segja (eða pikka...að minnsta kosti hugsa!). Þetta fékk mig einmitt til að hugsa svolítið í kvöld eftir að þú minntist á þetta á fundinum. 70 kg múrinn er glæsilegt markmið sem er fínt að miða við að halda sig undir. 67 kg er nú ekki það langt frá þeirri tölu þannig að mitt svar við spurningunni hvora töluna þú eigir að miða við er að þú þarft eiginlega bara að finna það hjá sjálfri þér. Ertu sátt við 69,5 eða viltu vera 67? Mér finnst þú glæsileg eins og þú ert en að miða við einhvern tug eða X5 tölu (t.d. 75, 65 eða eitthvað svoleiðis) er ákveðið aðhald...finnst það einhvern veginn meira en að miða við 71 kg...skilurðu??
En, gangi þér ofboðslega vel hvað sem þú ákveður að gera...afsakaðu langlokuna! ;)
Knús, Magga...