Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

19. mars

19. mars 2007 klukkan 13:45
Jæja þá er ég komin heim!!! HlæjandiHlæjandiHlæjandi
Ætluðum að vera komin heim í gær en urðum frá að hverfa vegna veðurs og ófærðar. Snerum semsagt við í Víðihlíð, heyrðum þá í útvarpinu að búið væri að loka heiðinni og þá var ekkert annað að gera en að snúa við, ekki nenntum við að þreyfa okkur áfram í lélegu skyggni og stoppa svo einhversstaðar og bíða...nei takk við snerum við á Krókinn.
Helgin var góð, ársfundurinn og árshátíðin var mjög vel heppnuð. Áður en árshátíðin byrjaði þá skelltum við Stefanía okkur í sund í Árgarði, ohhh það var frábært, höfðum með okkur öl og sátum og kjöftuðum......þegar við komum upp úr þá var klukkan hálf átta en kokteillinn byrjaði klukkan sjö opg maturinn átti að hefjast klukkan átta.......við settum met þetta kvöld, náðum að farða okkur og greiða á 20 mínútum.....og við vorum svo fínar....eiginlega orðnar svolítið kærulausar af bjórþambinu en þetta var gaman! Í stuttu máli þá var árshátíðin svona: Maturinn æði, skemmtiatriðin æði, hljómsveitin æði og gistiheimilið æði.
Sá danski hefur verið í rugli og vonast ég bara til að ég hafi ekki bætt miklu á mig um helgina. Ég hreyfði mig ekkert nema á ballinu þá dansaði ég eins og ég ætti lífið að leysa. Jæja best að fara að gera eitthvað, annað kvöld koma svo nýjar tölur.....Óákveðinn
 
Stefanía
Sæl Sigga!
Takk fyrir frábæra kvöldstund! Við verðum að endurtaka þetta við tækifæri ;)!
Kv Stefanía
#1
19. mars 2007 klukkan 14:21
Þetta hefur aldeilis ekki verið leiðinlegt!!:) Ef viktoría er eitthvað leiðinleg á morgun þá er það allavega ekki fituaukning..mesta lagi vökvasöfnun!!;) En í sambandi við austurferð..þá er ég nú ekkert rosa nálægt EGS...en sendu mér mail frokenin@gmail.com!!;)
#2
19. mars 2007 klukkan 15:23
 
Anna Lísa
Og þú ert líka æði Sigga! Það er svo frábært þegar það er svona gaman og allt tekst svona vel. Sá Danski fer ekkert frekar er rykið heima hjá mér.
Sé þig á morgun.
Kveðja Anna Lísa
#3
19. mars 2007 klukkan 20:00
ÆÐI :)
#4
19. mars 2007 klukkan 21:22
Gaman að lesa um hvað þú skemmtir þér vel :)
#5
20. mars 2007 klukkan 08:30

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.