Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

ţriđjudagur til ţrautar....

13. mars 2007 klukkan 11:15
Vaknaði fyrir klukkan sex í morgun og fór út í líkamsræktarsal.....puðaði þar með Teddu í klukkutíma.
Mataræðið er allt í lagi, gerði súpu í gær og á nokkra skammta, það er geggjað að nota afgangs fisk út í súpuna.....fiskur og súpa í gærkveldi og fiskur og súpa í hádeginu, saumó í kvöld......ætla að bjóða upp á eplaköku a la danski, döðluköku (veit hún er á bannlista en kíkið á hlekkinn hér fyrir aftan)
a la maður lifandi. Síðan ætla ég að gera spínatrétt úr dönsku grænmetisbókinni (Spis dig sund med grönt) og kjúklingasalat, uppskrift fengin hjá Hrafnhildi,  jammí, jammí. Kjúklingasalatið er reyndar kannski ekki alveg a la danski en girnó er það:

Kjúklingasalat f. 2-4
2 kjúklingabringur
Smá pipar
3 msk BBQ sósa
1 poki jöklasalat
1/2 poki klettasalat
2 tsk grænt pestó
1 box kirsuberjatómatar
1 rauð paprika
1/2 rauðlaukur
½ krukka fetaostur rauður
Hvítlaukssalt
2 lúkur nachos
Skerið kjúklingabringurnar í litla bita og steikið.  BBQ sósunni helt yfir, kryddað með pipar og látið malla í nokkrar mínútur.
Blandið saman klettasalati og jöklasalati í skál, hrærið pestóinu saman við.  Þá tómötum, papriku og rauðlauk.
Þá er fetaostinum blandað saman við, olían úr krukkunni má fylgja með, og kryddað með hvítlaukssalti.  Nachos flögurnar eru muldar yfir og að lokum er kjúklingnum bætt út í .

p.s. Vigtun seinnipartinn, vona að ég hafi í það minnsta staðið í stað nokkur hundruð grömm BURT væru einnig vel þegin.............. Glottandi
 
Miss UA
Djö...dugnaður!!;) MMMM....girnó matseðill!!!:P
#1
13. mars 2007 klukkan 22:00

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.