Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

helgin að verða búin

11. mars 2007 klukkan 20:44
Við vorum komin að norðan um miðnættið á föstudagskvöld, mikið var nú gott að vera komin heim eftir erfiðan dag. Drengirnir höfðu verið í góðu yfirlæti hjá vinum og vorum komnir heim og sváfu á sínu græna þegar við skriðum í hús.
Í gær keppti Stefán Snær á Íslandsmótinu í badmintoni og gekk vel, komst í 8 manna úrslit í sínum flokki, við erum mjög stolt af honum. Krakkarnir héðan fengu mjög mikilvæg verðlaun, fyrir bestu framkomuna, það er alveg frábært.
Sá danski hefur ekki verið að gera sig um helgina.....ARG hef kannski ekki sleppt fram af mér beislinu í áti heldur hef ég kannski ekki verið að borða rétt samsett, fékk mér reyndar pönnsur í dag og reyndar líka í erfidrykkjunni á föstudag hmhm en ég tek á því eitthvað .....svo er ég líka að hreyfa mig Glottandi Þetta kemur allt í ljós í næstu vigtun, ætla bara að vera bjartsýn, það er ekki eins og heimurinn sé að farast þó ég léttist ekki...... Þakka bara fyrir góða heilsu Brosandi
Velkomin til baka, svona ferðir kalla oft á rugl hjá manni. En eins og þú segir þá er bara að taka á því. Sendi syninum baráttukveðjur og samgleðst honum og ykkur með árangurinn. Duglegur strákur og rosa flott myndin af honum.
#1
11. mars 2007 klukkan 22:41
Glæsilegur árangur hjá Stefáni Snæ! Og ekki síst framkomuverðlaunin! Þau bestu sem nokkurt lið getur fengið að mínu mati. :)
Takk kærlega fyrir peppið, þú ert alltaf jafn æðisleg dúllan mín! :)
Við eigum eftir að gera góða hluti í danska..kannski ekki núna á þriðjudaginn, en þá bara þriðjudaginn eftir það! :)

Knús, Magga
#2
11. mars 2007 klukkan 22:47
Alveg rétt hjá þér heimurinn ferst ekki!!:) þú hristir þetta af þér!!!;)
#3
12. mars 2007 klukkan 08:38

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.