Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

spjall

07. mars 2007 klukkan 14:34
Í dag er ég ferlega löt, held ég sé í hálfgerðu spennufalli.....Skotlandsferðin er orðin 95% klár, mikið er ég fegin, það get ég sagt ykkur. Ef þið ætlið til Skotlands einhverntíman þá ráðlegg ég ykkur ekki að fara í stórum hóp....nema auðvitað ef þið ætlið bara að hanga  í stóru borgunum. Þetta er þó ekki nema 37 manna hópur en samt sem áður þá hefur það verið handleggur að redda gistingunni, það er samt nóg af gistiheimilum en þau eru oftast ekki gerð fyrir svona "stóran" hóp. Við komum til með að gista í sex þorpum/borgum/bæjum eina nótt á hverjum stað nema á tveimur stöðum gistum við tvær nætur. Fyrstu nóttina þarf að skipta hópnum á tvo gististaði og aðra nóttina verður hópurinn á fjórum gistiheimilum. Svo þarf þetta allt að passa, dagskráin er í megindráttum klár á bara eftir að redda aðgangi í einn garð og eina Whiskey versksmiðju.....já svo á ég eftir að senda herbergjalista á alla staðina og ble ble ble..... Eitt hef ég ákveðið að gera þegar við komum heim frá Skotlandi, að taka eina til tvær vikur í sumarfrí!!! Þessi ferð hefur verið límd við heilann á mér í þrjá mánuði og verður það allt þar til heim verður komið  þann 15. ágúst, það er ekki í lagi með mann, að stressa sig svona út af einni ferð!!!!
Nú get ég farið að einbeita mér að öðrum verkefnum í vinnunni en af nógu er að taka þó sérstaklega að færa gögn yfir á "Grænsíðu" spennandi verkefni það. Ráðstefnan á Eiðum er eftir tvær vikur, það verður fróðlegt.
Svo er stjórnarfundur hjá Norræna félaginu í kvöld en framundan er vinabæjamót HÉR!!! OMG, ó mæ, eitthvað þarf að undirbúa það. Þeir sem eiga heima í Borgarbyggð og hafið áhuga á að hýsa norræna gesti helgina 23.-25. júní endilega hafið samband við mig. Þetta er mjög skemmtilegt verkefni og þroskandi, ekki má gleyma því Hlæjandi
Jæja best að fara að gera eitthvað af viti, held ég verði bara að skella í mig eins og einum rótsterkum kaffibolla til að koma heilasellunum á hreyfingu, heyrumst síðar!
Blessuð Sigga mín - hrikalega ertu dugleg....einn 100% DDV dagurinn á fætur öðrum - eitthvað annað hjá mér þessa dagana - 900g uppávið þessa vikuna og ég er alveg að koðna ofaní klo.....þú veist ;o)

....en ekkert þýðir að væla - bara taka sig á....vonandi heyrumst við fljótlega

kv.Ása Dóra
#1
07. mars 2007 klukkan 22:26
til hamingju með léttinginn:) og að fara til Skotlands ég fór fyrir nokkrum árum og dauðlangar aftur:)fór á bílasýningu í Glamis... ég hafði nú meira gaman af að skoða kastalann en bílanna:):)....og svo náttlega skoðuðum við viskí verksmiðju..Famous grouse.... og þetta var frábær ferð:):)....hafðu það gott dúlla...knús....
#2
08. mars 2007 klukkan 07:45

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.