Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

26. febrúar 2007 klukkan 19:31
Þvílík blíða í dag, svo fallegt veður, sól, logn og mjög mikið frost, það fór í 13,5 ° frost hér á Hvanneyri kl 9 í morgun (skv. opinberum mæli veðurstofunnar).
Fór snemma úr vinnu því ég þurfti að keyra Stefáni og vini hans á badmintonæfingu. Notaði tækifærið og skellti mér í ljós já, ég veit það er óhollt en þetta geri ég mjög sjaldan er að spá í að reyna að fá smá lit fyrir árshátíðina þann 16. mars. (hugs, hugs, nema ég prófi brúnkukrem.....?) Eftir ljósin skellti ég mér í laugina og synti 500 metra, fór svo í pottinn á eftir. Þetta var æði, ég elska sund. Þegar við bjuggum á Króknum þá stundaði ég sundið mikið, fór reyndar ekki á hverjum degi en svona 3svar í viku fór ég og synti 500-1000 metra......Jæja nóg um það í bili, nýjar tölur koma svo annað kvöld Glottandi
Dugnaðurinn í þér kona! :) Dáist að þér...hef eiginlega aldrei kunnað vel við mig í sundi...eða á hlaupum...eða í aerobic...eða í neinu sem krefst of mikillar hreyfingar...nema karate, jú...það var gaman. Þarf að fara að venja mig við vatn öðruvísi en annað hvort úr sturtuhaus, skýjunum eða úr krana.

Kv. Magga
#1
26. febrúar 2007 klukkan 22:18
úff,,,,sund.....og mér sem fannst erfitt þegar við fórum allta í varmó að lifta og synda!!! en talandi um norðurland,,hvernær ætliði að kíkja næst í skagafjörðinn?? Er ekki nógu flinkur að setja inn myndir á síðuna hjá mér af íbúðinni, held að það myndi spara mikinn tíma ef þið kæmuð bara í kaffi!! ;) Var að koma úr bandí,,,,,held að ég sé að deyja er svo búinn að það er ekki fyndið!!! ;) Heyrumst!!
#2
26. febrúar 2007 klukkan 23:11
Mér finnst yndislegt í sundi..förum mikið með strákana okkar í sund! En mest til að hanga í pottinum og leika við strákana!!;)
#3
27. febrúar 2007 klukkan 08:53

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.