Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Blóm

22. febrúar 2007 klukkan 09:39

Þó það sé alhvít jörð hér á Hvanneyri núna þá er hugur minn óneitanlega bundinn við vorið. Undirbúningur vegna vorgróðursetninga er að fara í gang hér hjá Vesturlandsskógum. Gróðrarstöðvarnar eru byrjaðar að sá sumarblómum en eftir að hafa starfað þónokkuð lengi í þeim geira þá kitlar mig alltaf í fingurna að komast í smá "prikl". Svo ég tali nú ekki um lyktina sem er í gróðurhúsunum á þessum tíma, moldarlyktin. Næst þegar við förum norður í Skagafjörð þá ætla ég að kíkja í gróðrarstöð sem framleiðir sumarblóm. Svo fer ég að spá í hvað ég ætla að gera í garðinum í sumar, hvaða sumarblómategundir ég fæ mér og hvar ég eigi að troða einhverju nýju....... Eitt vil ég benda ykkur á sem hafið áhuga, kaupið frekar dýrari og vandaðri vöru (þá á ég við sumarblóm) heldur en ódýrt drasl í stórmörkuðunum.....trúið mér það borgar sig. Ég er búin að búa til undirsíðu hérna á blogginu og setja inn smá visku varðandi sumarblóm. Kíkið á ef þið hafið áhuga.

Varðandi mataræðið þá held ég sé komin í rétta gírinn núna, ætla að taka á því og held fast í markmiðin mín!!!!!
Glæsilegt með rétta gírinn! :) Ánægð að heyra það...er sjálf í stökustu vandræðum að finna hádegismat á morgun...þarf að búa eitthvað sniðugt til svo mér takist að halda deginum fínum og flottum... :)

Kv. Magga
#1
22. febrúar 2007 klukkan 22:20

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.