Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Saltkjöt og baunir, túkall!!

20. febrúar 2007 klukkan 14:06
Borðaði yfir mig af saltkjöti, baunum, rófum og kartöflum í hádeginu.....kann ekki góðri lukku að stýra, því það er vigtun seinna í dag Skömmustulegur Ég var bara orðin hress um miðjan dag í gær, nýhreinsuð og fín, sagði þeim á kaffistofunni það í morgunn að ég hefði grætt tugi þúsunda í gær .....sumir borga fyrir að fara í stólpípumeðferð á heilsuhæli í Póllandi en ekki ég, ég fékk bara magakveisu!
Ég fékk bók í afmælisgjöf frá tengdó sem heitir " Höndlaðu hamingjuna! Leiðarvísir að öflugu sjálfsöryggi og aukinni lífsfyllingu" eftir Andrew Matthews. Í þessari bók kennir ýmissa grasa, hér er smá dæmi og þetta ætla ég að gera að mottói mínu:

Hvar sem þú ert staddur á lífsleiðinni er það einmitt rétti staðurinn til að hefja för. Framlag dagsins í dag gerir gæfumuninn.

Og hér er annað sem ég ætla ávalt að hafa á bak við eyrað:

Markmið er afl sem gerir okkur kleift að sigrast á takmörkunum okkar og vaxa umfram eigin mátt. Við þörfnumst markmiða, en ekki vegna þess hvað þau gefa okkur heldur hvað þau gera fyrir okkur. 

Nú hef ég ákveðið að setja mér markmið en það er að næstu þrjár og hálf vika verða 100% ddv. Meira að segja á föstudaginn þegar vð verðum með matarklúb þá verður ekkert svindl.

Núna er ég búin að vera eina viku í ræktinni þ.e. við Tedda höfum farið þrisvar en við ætlum að hafa þetta þannig að í ræktina förum við á mánudögum, miðvikudögum og síðan einu sinni um helgar. Auk þess er gönguferð á laugardagsmorgnum og sund þegar því verður komið við.
Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar Glottandi Svo koma nýjar tölur í kvöld......

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.