Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

400 upp!!!

13. febrúar 2007 klukkan 22:00
Já nú kom að því....manni hefnist fyrir að vera óþekkur!!! Mér var nær og allt það, búin að haga mér eins og, eins og, eins og...ja ég veit bara ekki hvað, hömlulaus um helgina, datt í nammiát á laugardaginn af því að mér "leiddist"! Fjögurhundruð grömm bættust á mig þessa vikuna. Þá er ekkert annað að gera en að setja hausinn undir sig og æða áfram, þetta á sko ekki að endurtaka sig, það er á tæru.
Ég veit alveg hvað það er sem virkar og ég ætla mér að kippa þessu í lag.
Í fyrsta lagi ætla ég að vera dugleg að skrifa, halda utan um allt sem ég læt ofan í mig.
Fiskur af einhverju tagi flesta daga.
Passa upp á að borða allt sem ég á að borða.
Og síðan ætla ég að muna að sykur er vondur, hentar mér ekki og hann á ekki að koma inn fyrir mínar varir, ojbara!
Það verður enginn bolludagur í ár hjá mér, ég útbý mér bara eitthvað ddv-gotterí í staðinn.
VERA JÁKVÆÐ!!!!!! MÉR HÆTTIR TIL AÐ VERÐA FULL NEIKVÆÐ OG ÞUNG Á ÞESSUM ÁRSTÍMA EN ÞAÐ ER BARA BANNAÐ, NÚ VERÐ ÉG BARA AÐ FARA AÐ BROSA!

Að lokum, takk fyrir stuðninginn stelpur hann er mér mikils virði ég get ekki annað en verið ánægð með árangur minn fram að þessu en ég veit að ég get betur Glottandi

p.s. Á morgun fer ég í líkamsrækt og ég stend við það!!!!!!
Tek undir það, brostu framan í lífið og þá brosir lífið við þér :-D Þú getur þetta allt saman, það er engin spurning, bara vera jákvæð og horfa á hversu glæsilegur árangurinn þinn er búinn að vera! Þú ert búin að standa þig eins og hetja og lætur nú ekki lítið hliðarspor setja þig út af laginu ;o)
Sendi danska hvatningu, hún ætti nú að hafa jákvæð áhrif á þann danska.... hehe!
Kær kveðja
Hanna Dóra Bj.
#1
14. febrúar 2007 klukkan 08:49
Það þýðir ekkert að svekkja sig yfir því sem búið er! Við vitum hvað við þurfum að gera...erfiða er að framkvæma það:o! En já sykur er "verkfæri djöfullsins"!!;) Næsta vika hjá mér össhh sösshh...bolludagur..sprengidagur...ammæli hjá syninum.. árshátíðarhelgarferð til RVK í boði vinnunnar..ÓMG!! Er til einhverjar DDV bollur???
#2
14. febrúar 2007 klukkan 09:08
 
Silla
Jákvæðni dregur mann ansi langt.. þú ert ótrúlega dugleg og þó að 400 gr hafi komið á þig.. og so what! Þú ert búin að borða þetta, getur ekki tekið það til baka, nú er bara að snúa vörn í sókn og klára dæmið, bolludagur... hmmm spurning, ég ætla í það minnsta EKKI að borða bollur þennan bolludaginn. Svo er nú 18 feb framundan og þá máttu fá þér það sem að ÞÚ vilt... ekki satt???
Þetta tekst hjá þér... þetta tekur allt tíma, einn dagur í einu!! En já.. maður getur orðið ansi reiður við sjálfan sig þegar maður fær plústölu í andlitið en það þýðir bara EKKI... búið og gert, nú þarf bara að snúa vörn í sókn.. áfram áfram!
Kveðja úr borg óttans, Silla.
#3
14. febrúar 2007 klukkan 09:08
Auðvitað geturðu betur, hefur aldeilis sýnt það :) Um að gera að vera jákvæð, við erum alltof duglegar við að rífa okkur niður í stað þess að fóksua á það jákvæða. Áfram stelpa!
#4
14. febrúar 2007 klukkan 15:19
 
Ingibjörg
issss 400 upp! þú ferð nú létt með að ná því af þér ef ég þekki þig rétt
Áfram Sigga!!
#5
14. febrúar 2007 klukkan 16:53
Sammála öllum hér að ofan...þú ferð sko létt með að kippa þessu af þér. :) Mundu að þú ert fyrirmyndin mín, ég er ótrúlega stolt af árangri þínum og þér mun takast að kippa þessum síðustu kílóum af þér!

Pollýanna rúlar! ;)

Knús, Magga
#6
14. febrúar 2007 klukkan 17:45
400gr er ekkert ,dúllan mín þú verður fljót að taka það af þér aftur ekki spurnign:)))
Gangi þér vel.
#7
14. febrúar 2007 klukkan 18:38
Uss þó maður misstígi sig einu sinni - maður stendur bara upp aftur og heldur ótrauð áfram :)

Gangi þér sem allra best
#8
15. febrúar 2007 klukkan 10:29
isspiss... þú rústar þessu í næstu viku:)... sé að þú ert að sparka í rassinn á þér sjálf og hér kemur frá mér*spark*:):):):)...koma svo:)í ræktinna og út að labba:)...knús...
#9
16. febrúar 2007 klukkan 04:16

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.