Ný vinnuvika
12. febrúar 2007 klukkan 08:07
Jæja, enn og aftur er kominn mánudagur. Ég er búin að ákveða að taka vel á því þessa viku, nú verður fiskur á hverjum degi, það er það sem hefur reynst mér farsælast, að borða nægan fisk, allskonar fisk.
Síðan verður nóg að gera í vinnunni og fræðaþing á fimmtudag og föstudag.
Eitt er farið að valda mér hugarangri, það er farið að styttast í bolludaginn og þá félaga.......hvað á maður að gera þá? Á einhver góða ddv bolluuppskrift? Hingað til hefur þetta verið þannig að við borðum bollur heima hjá mér á sunnudeginum, síðan hefur maður "lent" í bollum hér og þar á bolludaginn sjálfan og á sprengidaginn höfum við farið í saltkjöt og baunir til Ingu og þar er alltaf boðið upp á bollur í desert!!!! Laglegt át þar!!!
Jæja best að fara að gera eitthvað, eigið góða vinnuviku!

Enívei...auglýsum hér með eftir svoleiðis.
Hef fulla trú á þér Sigga mín...En ef uppskriftin finnst ekki, er þá ekki bara að reyna að hafa sjálfsstjórnina í lagi, velja minnstu bolluna úr, fá sér hana og láta þar við sitja...? Veit að þú getur það...!