Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Draumalandið

08. febrúar 2007 klukkan 13:11
Draumalandið, þetta fer að verða hálfþreyttur frasi!
Það er ótrúlegt hvað menn reyna til að slá ryki í augu neytenda.....lítið á þetta hérna fyrir neðan sem ég stal af
http://landbunadur.is

Draumalandsauglýsingar Bónuss slá ryki í augu neytenda
Auglýsingar Bónuss um síðustu helgi, sem kenndar eru við „Draumalandið”, eru ekki aðeins ávísun á stórlækkað verð á innfluttum landbúnaðarafurðum til neytenda. Miklu meiri athygli vekur, að þær virðast fyrirboði gerbreyttrar álagningarstefnu fyrirtækisins. Bændasamtök Íslands hvetja Bónus til að sýna styrk sinn og heimfæra þessa stefnu upp á íslenskar landbúnaðarvörur og stuðla þannig að verulegri lækkun þeirra nú þegar.

Í auglýsingunni eru neytendum boðnar danskar kjúklingabringur á 499 kr. kg. Hér er miðað við frjálsan innflutning, án allra gjalda. Meðalinnflutningsverð (CIF) á bringum á síðasta ári var 418 kr. kg samkvæmt innflutningsskýrslum. Án virðisaukaskatts er verð á bringunum 439 kr. kg.

Samkvæmt þessari auglýsingu er álagning Bónuss 21 króna á hvert kíló af kjúklingabringum eða um 5%. Fyrir þá upphæð á eftir að skipa bringunum upp, aka vörunni til birgðastöðvar, dreifa á sölustaði, selja og taka tillit til vörurýrnunar. Að ekki sé svo minnst á kostnaðinn við að auglýsa vörurnar!

Sambærilegar reikningskúnstir eru notaðar til þess að stilla upp freistandi verðdæmum fyrir lambalæri frá Nýja-Sjálandi og frosnar nautalundir. Í báðum tilvikum er álagning fyrirtækisins lítil sem engin.

Því verður ekki trúað að Bónus ætli að leggja minna á innfluttar búvörur en innlendar, segir í fréttatilkynningu sem BÍ sendi frá sér í kjölfar málsins, og þau spyrja af hverju ekki sé hægt að lækka vöruverðið strax.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.