Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

mánudagur

05. febrúar 2007 klukkan 15:03
Enn eina ferðina er mánudagur....ótrúlegt hvað tíminn flýgur.
Ég er heima í dag, ætla að ná þessum flensuskít úr mér fyrir fullt og allt. Þórður Logi fór til dagmömmunnar en Stefán Snær er heima með hálsbólgu og hita.
Það er vigtun á morgun....spennandi að vita hver útkoman verður þar en einhvernveginn er ég ekkert viss um að það hafi mikið gerst hjá mér þrátt fyrir 100% daga, það kemur allt í ljós á morgun. Annað kvöld ætla ég að endurskoða markmiðin mín.
Hef annars mjög lítið að segja.
Njótið vikunnar!
Hæ hæ
Ég sendi hér með danskar batakveðjur og vona að þið náið nú að rífa þetta úr ykkur sem fyrst ;o) Glæsilegt hvað þú ert að standa þig vel á DDV, algjör hetja sko! Ég er loksins að komast í gang að nýju..... er búið að taka tíma sinn...
Kærar þakkir fyrir fyrir að vera svona dugleg að kíkja á mig og skrifa kveðjur og hvatningar :-)
Kær kveðja
Hanna Dóra
#1
06. febrúar 2007 klukkan 02:09
 
Anna Lísa
Ég hef fulla trú á því að þú hafir ekki staðið í stað, skít á að það hafi farið 800-1000 gr af þér þessa vikuna. Ég er alveg viss. Sjáumst á morgun. Kveðja Anna Lísa
#2
06. febrúar 2007 klukkan 03:24

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.