Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

2. feb

02. febrúar 2007 klukkan 15:08
Takk fyrir ráðleggingarnar, jú kannski fer ég bara í apótekið og kaupi mér spirolinu.
Ég er heima núna með stubbinn minn, fannst hann eitthvað svo daufur seinnipartinn í gær og mældi hann, 39°C. Hann svaf ekki vel í nótt og þ.a.l. ekki ég heldur, fyrst í morgun var hann hitalaus en núna er hann komin með bullandi hita. Þessu fylgir síðan hósti og kvef. Ég ætla  í vinnuna eftir hádegið en Haukur kemur þá heim. Mataræðið gegnur bara vel.....ég ætla að vera dugleg í fisknum þessa vikuna, í dag er þriðji dagurinn í röð sem ég er með fisk í kvöldmatinn....í fyrradag voru það bollur, í gærkv. nætursaltaður þorskur, í kvöld ofnbökuð ýsa og ætli ég verði ekki með rækjur í hádeginu á morgun.....
Eitt er ég búin að koma í verk, keypti mér aðgang að líkamsræktaraðstöðunni sem skólafélag LBHÍ rekur, þannig að nú verur maður að fara að koma sér í form!
Eigið góðan dag!
Æ Æ aldrei gott að vera lasinn, elsku karlinn, en hann er náttúrulega jafn harður eins og mamma sín og fljótur að hrista þetta af sér;-)
Bið að heilsa börnunum þrem he he ;-)
Annars veit ég nú ekki með að koma við á Hvanneyri á sunnudaginn, það verða einhverjir farþegar.....spurning ef það verður bara Maggý að ég geti samið við kellu....verð bara í bandi við þig þegar nær dregur...!!!
Knús og kossar
#1
02. febrúar 2007 klukkan 22:35
Vona að litli stubburinn þinn verði ekki mikið og lengi lasin. Rosalega mikið af pestum að ganga núna.
Þú ert greynilega á réttri braut í mataræðinu ætla að taka þig til fyrirmyndar
#2
03. febrúar 2007 klukkan 05:05

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.