sunnudagur
29. janúar 2007 klukkan 02:28
Jú, ég prjónaði peysurnar sem drengirnir eru í á myndinni. Ég er algjör lopapeysukona........liggur við að lopapeysan mín sé gróin við mig!
Afmælið var frábært (mæli með Mýramanninum), bóndanum tókst ekki að draga mig heim fyrr en....ja ég veit ekki hvenær, ég borðaði magál og harðfisk eins og ég fengi borgað fyrir það og svo auðvitað kjötsúpuna sem var æði. Svo drakk ég rauðvín og eiginlega heldur mikið af því! Núna ætla ég að láta áfengið vera um hríð...... þó virðist það ekki hafa mikil áhrif á þyngdina hjá mér en ég ætla aðeins að hægja á mér í þeim efnum. Það sem mér fannst eiginlega ótrúlega skemmtilegt í afmælinu voru öll hrósin sem ég fékk, TAKK STELPUR ÞIÐ ERUÐ ÆÐI!
Það verður 10 vikna námskeið hjá vigtarráðgjöfunum, það byrjar á þriðjudaginn, ohhhhh hvað ég hlakka til. Ætti ég að koma með nýtt markmið? Hvað leggið þið til konur góðar? - 5, 6,7,8,9 eða 10 kg á þessum 10 vikum????? Ætla að setja upp smá skoðanakönnun sem ég mun láta standa yfir í viku. Takið þátt.
Fréttir helgarinnar.....Oddný Steina og Gústi eignuðust dreng í fyrrinótt, TIL HAMINGJU!!!!