26. janúar 2007 klukkan 15:59
Hér er ég komin!! Búin að fara austur á Egilsstaði að hitta félaga mína hjá hinum skógræktarverkefnunum, það var alveg ofsalega gaman og gagnlegt. Vestlendingar, sunnlendingar og vestfirðingar voru samferða í flugi austur og þar hittum við austfirðinga og norðlendinga. Funduðum á gistihúsinu á Egilsstöðum eftir hádegið á miðvikudag....ofsalega skemmtilegur staður, um kvöldið fórum við á kaffi Nielsen og ég fékk mér humarsúpu og BJÓR!!!!!!! Súpan var æði. Síðan fór ég til Júlíu frænku og við spjölluðum fram á nótt, gisti þar semsagt. Í gærmorgun lá leið okkar í Skriðuklaustur (æðislegur fundarstaður, frábær matur) þar sem við funduðum til kl 3 en þá fórum við í smá skoðunarferð. Hittum grisjunargengi sem var að höggva inn á Fljótsdal, kíktum á viðarkyndingu á Hallormsstað og brunuðum síðan út á hótel Hérað þar sem formleg opnun "Grænsíðu" fór fram. Snittur, smáréttir og bjór fóru þar inn um varir mínar...........fór síðan með flugi suður.
Var pínu svekt þegar ég kíkti á kommentin áðan og sá að ég hefði kannski getað hitt MissUA....en ég fer aftur austur á ráðstefnu í mars, hver veit nema við getum mælt okkur mót þá
Í kvöld erum við að fara í fertugsafmæli Gísla Einars en þar mun hann frumsýna einleikinn Mýramanninn/Homo palustre það mun verða dálagleg skemmtun.....mér skildist á afmælisboðinu að í boði verði magáll og sviðasulta, naumt skammtað. Þannig að ég fitna ekkert í kvöld.....
Jæja best að hætta þessu kjaftæði og fara að vinna.
Ég get ekki skilið annað en að þetta námskeið verði hjá vigtarráðgjöfunum....þannig að ég er himinlifandi!
Smá viðbót....varðandi opunina á "Grænsíðu" þá setti landsleikurinn mark sitt á þessa athöfn og endaði með því að tónlistarmennirnir sem voru að spila á meðan fólkið var að gúffa í sig snittur og teiga vína voru látnir stoppa og leiknum var varpað upp á skjá....kokteilboðið breyttist semsagt í leikáhorf....bara gaman að því.

kv...