Blessuð góða mín og gaman að sjá hvað þér gegnur vel.. TIL HAMINGJU :)
Ég er að byrja í þeim danska aftur. Byrjaði reyndar á mánudaginn en svo er maður nú búin að svindla mest alla dagana eitthvað, þetta er alveg að koma. Tekur smá tíma að koma sér í gang, en maður finnur það strax hvað maður er mikið léttari að borða svona mikið grænmeti.. Seinniparturinn er bara soldið erfiður eins og þú kannast örugglega við..hehehe.. Ég er sko búin að bæta við mig síðan í haust, þoli ekki þegar fötin fara að þrengjast heldur mikið!!
Annars er allt í þessu fína. Ég er í þorrablótsnefnd þetta árið. Blótið fer fram 3. feb. og allir velkomnir, nóg gistipláss í þessum 240 fermetrum sem ég hef ;) Svo er ég búin að panta mér ferð til Kanada í sumar, 14-28 júní. Hlakka til, á bara eftir að skipuleggja hvernig ég eyði tímanum en það er nú örugglega ekkert mál að fylla hvern einasta dag af stífri dagskrá..
Bið að heilsa í bæinn,
Bestu kveðjur úr Suðursveitinni
Þórey
Hvað er í gangi?
18. janúar 2007 klukkan 15:01
Ég skil ekki stjórnmálamenn.....var að horfa á Ísland í dag, í gær og líka Kastljósið og þar var verið að fjalla um frjálslindaflokkinn og stöðuna sem þar er komin upp.....krísa er þetta heldur betur. Hvað hafa menn svona mikið á móti Margréti Sverris? Hún virkar mjög vel á mig......það er kannski vegna þess að ég er ekki í frjálslindaflokknum? Svo er þetta blessaða málþóf á hinu háa Alþingi....þó ég sé ekki hlint ríkisstjórninni að þá finnst mér þetta einum of........þeir standa þarna í púlti og tala og tala og tala og hver hlustar? Kannski fjórar manneskjur í salnum en ætli þeir séu að hlusta, nei örugglega ekki.......þeir eru bara með ipodinn sinn.
Núna í vikunni kom Samfylkingarfólkí heimsókn á minn vinnustað, þau þræddu skrifstofurnar í húsinu....já nú er sá tími að koma, fínir frambjóðendur að sýna sig og sjá aðra. Alveg merkilegt þeir koma hingað bara í kosningabaráttunni.... nema reyndar einn alþingismaður kjördæmisins hann kíkir oft hingað í kaffi ef hann á leið hjá.....það er Jón Bjarnason. Aðrir láta ekki sjá sig, alveg merkilegt. NEMA ef maður lendir í kokteilboði sem ráðuneytið borgar ÞÁ koma sumir og skvetta í sig.
Dagurinn í gær var ekki 100% - það var saumó hjá Önnu Lísu. Saumóinn var reyndar mjög ddv-vænn en ég borðaði of mikið.
Þetta verður frábær dagur hjá mér, vonandi verður hann það hjá ykkur!

#2
19. janúar 2007 klukkan 04:51
Já ég efast ekki um að dagurinn verður frábær hjá okkur líka.
kveðja ALH