Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

athugið

17. janúar 2007 klukkan 15:38
Ég sá á netinu að ddv námskeiðin á Egilsstöðum, Húsavík og Dalvík verða ekki því ekki náðist næg þátttaka. Ég er mjög leið fyrir hönd þeirra sem langaði að vera með Gráta

Þess vegna hvet ég ykkur sem eruð á Vesturlandi og langar að taka þátt að skrá ykkur fyrir 23. jan á ddv@simnet.is merkt "Borgarnes" en námsskeiðið hefst 30. janúar kl 17:30. Og koma svo!!!!!

Þetta er frábært, ég þurfti að létta mig um 20 kg og er nú þegar búin að ná ríflega 12 af mér og á bara 8 eftir.  Nota bene ég byrjaði 5. september 2006. Konurnar sem voru samferða mér í þessu segja að kílóin hafi hreinlega fokið af sér.
Ég ætla sko að vera með!!!

Varðandi hreyfinguna þá er ég ekki byrjuð á fullu....jebbs skamm ég!!! Ég hef samt haldið mig við göngutúrana 3svar í viku. Svo kemur sundið þegar ekki er svona mikið frost og lyftingarnar koma svona einhverntíman!
GOOO Sigga frænka ;) Sé að þú ert að standa þig með príði og, það sem skiptir öllu máli, þú ert að gera þetta eðlilega og á markvissan hátt - segi nú bara HIGH FIVE fyrir frænku :)

gaman að lesa "dagbók lífs þíns" híhí ... vissi til dæmis ekki að þið haukur eruð búin að vera lengi saman, svona flýgur tíminn frá okkur!

flott mynd af strákunum í bannernum :)

hafðu það gott
#1
17. janúar 2007 klukkan 22:22

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.