snjór, snjór, snjór!
Búin að hreyfa mig í dag, fór i göngutúr. Við vorum reyndar bara tvær sem mættum í gönguhóp, plús Þórður Logi og Lubbi. Það vildi ekki betur til en það að það kom él um tíuleitið þannig að það viðraði kannski ekki mjög skemmtilega til göngu. Við biðum élið af okkur í morgunkaffi hjá Ingu og Kela í Garði en héldum síðan áfram, tókum smá hring hér um staðinn. Það má segja það að þó göngutúrinn hafi ekki verið langur þá er alltaf aðeins erfiðara að ganga í ökladjúpum snjó og síðan til að auka aðeins á erfiðið þá var ég með Þórð Loga á bakinu.
Maturinn í dag:
Mm: Brauð, smyrja, ostur, kaffi, kiwi.
Hm: Grænmetissúpa, egg, brauð.
Sk: Kaffi, vínber, kanilepli.
Km: Fiskur í ofni, grænmeti.
Kk: Appelsína, fjörmjólk.
Í dag ætla ég að vinna eitthvað í bókhaldi (sem mér þykir frekar leiðinlegt enda hef ég ekkert vit á því!!) og baka því stóri strákurinn minn er 11 ára á morgunn og hann á von á ættingjum í kaffi.
Á morgunn er matarplanið svona:
Mm: Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani.
Hm + sk: Afmælisveisla.....heitur réttur, rommbúðingur og skyrkaka (af heimasíðu súpers) grænmeti.
Km: Grænmeti og eitthvað óákveðið........
Kk: ávextir og fjörmjólk ef ég á eitthvað inni!
Tók eftir því að ég er númer 2001 hingað inn á síðuna....átti ekki von á að fá svona margar heimsóknir, einhverntíman var ég að spá í hvort ég ætti að setja það inn sem eitt af markmiðunum að vera búin að missa 15 kg þegar innlitin færu í 2000......fegin að ég setti það ekki inn. Hefði aldrei staðist það! Ætti ég að setja mér það markmið að vera komin í 15 kg í mínus við 2500 innlit?
Ég þakka ykkur öllum fyrir innlit, hvatningu, athugasemdir og kvitt í gestabók....það skiptir mann miklu máli. TAKK!!!!! ![]()
Svo í lokin þá ætla ég bara rétt að vona að þessi snjór haldist eitthvað, það birtir svo mikið yfir öllu við að fá hann.
Góða helgi.
Þú ert að standa þig vel, ekki spurning! Vildi óska að ég væri duglegri við að fara í gönguferðir úti.... það er bara svoooo kalt þessa dagana!
Ég labbaði þó í skólann í morgun og heim aftur :)
Held samt að þetta komment hafi farið í eintóma vitleysu...!
Lofa ekki neinu en langar samt að mæta næst...
Já, og þú stendur þig eins og hetja... :)
Kv. Magga
Gangi þér áfram vel á þessari braut - hef ofurtrú á þér.