Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

út og suður

11. janúar 2007 klukkan 15:55
Hér á bæ halda veikindi áfram, ég er samt öll að koma til og stefni á að skunda til vinnu eftir hádegið  en þá kemur Haukur heim og verður hjá Þórði. Reikna svo með að Þórður Logi fari til dagmömmu á morgunn.

Matarplan dagsins lítur svona út:
Mm: Brauð, ostur, smyrja, mandarína, kaffi.
Hm: Grænmetissúpa, rækjur, brauð.
Sk: Banani, kaffi.
Km: Fiskur, grænmeti.
Kk: Vínber, Fjörmjólk, olía.

Mikið ofboðslega hlakka ég til þegar janúar er búinn þá verður vonandi mest öll vinnan vegna ferðarinnar búin en það er svolítið stressandi að sjá um að skipuleggja ferð fyrir svona hóp, bóka gistingu á nokkrum stöðum, finna rútu og láta þetta allt smella saman. Það er t.d. ekki auðvelt að finna ódýra gististaði sem taka þó ekki stærri hóp en þetta.....agalegt að þurfa að dreifa fólki á 2-3 gististaði á hverjum næturstað.......það er semsagt þeta sem veldur stressi í mér þessa dagana!!!
Svo ég minnist ekki á blessaða bókhaldið hjá badmintondeildinni sem ég ætti nú að vera tilbúin með......hmhmhmh skil ekki hvað ég er að láta plata mig í svona lagað....en hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín?

Ég hef verið svolítð hugsi yfir umræðunni um matvælaverðið. Ég hef ekkert vit á hagfræði eða hvað þetta heitir nú allt saman en ég hef verið að hugsa um neyslumynstrið á mínu heimili. Málið er nefnilega að ég versla meiri munaðarvöru en ég gerði áður......tökum dæmi:
Fyrir 5 árum:
Keypti ég Bónus  eða BKI kaffi, ódýrustu ávextina, ódýrasta áleggið og svona mætti lengi telja.
Það var undantekning ef farið var til útlanda.
Fórum næstum aldrei út að borða.
Var nýtnari á fatnað.
"Sparaði" ferðirnar í Bogarnes.
Spáði í stærð jólatrésins!
Í dag:
Kaupi kaffi frá Kaffitár, kaupi þá matvöru sem mig langar í.
Árið 2006 fór ég tvisvar til útlanda og maðurinn minn þrisvar. Á þessu ári er nú þegar búið  að plana eina utanlandsferð hjá mér en tvær hjá manninum mínum
Förum út að borða ef við viljum og ef við fáum pössun.......
Kaupi föt ef okkur langar eða vantar spái ekki mikið í verð aðallega að fötin og skórnir séu þægileg/ir.
Spái ekkert í fjölda ferða í Borgarnes
Kaupi flottasta jólatréð!
Þetta er auðvitað ekki heilbrigt!

Þetta mundi sumir segja að væri algjört bull í mér en svona er þetta bara ég eyði í meiri munað og e.t.v. vitleysu........mikið væri ég rík í dag ef ég hugsaði eins og ég gerði fyrir fimm árum. Við höfum það bara ansk..... gott þó erum við hjónin bara ríkisstarfsmenn. Við búum þó ekki í einbýlishúsi og eigum ekki sumarbústað og jeppa. Við búum í 137 fm parhúsi með bílskúr og tveimur sólpöllum og keyrum um á 7 ára gömlum Suzuki Baleno. Talandi um bílskúrinn þá er hann fullur af drasli sem einhverntíman var keypt af því það var algjör nauðsyn......neysluþjóðfélag?
Eins og ég sagði fyrr þá hef ég ekkert vit á hagfræði, rekstri eða viðskiptum. Ég tel mig hafa vit á náttúrufræði, umhverfinu sem við búum í og oggulítið vit á landbúnaði.
En það er ekki að sjá í verki.....ég keyri stundum óþarflega margar ferðir í Borgarnes, ég er með ýmislegt í sambandi sem eyðir rafmagni (já vissuð þið það að tæki eyða rafmagni ef þau eru í sambandi??), ég er ekki nógu dugleg að flokka ruslið mitt, Ég fer á kaffistofur og matsölustaði sem eru eingöngu með einnota ílát sem er bara gagagagaga, ég á allt of mikið af fötum sem ég geng ekki í......fötin eru jú mörg hver unnin úr náttúrulegum efnum....já og svona get ég haldið endalaust áfram.
Jæja verð að hætta litli ormurinn minn kalla á athygli, ætla að fara að leika við hann og finna eitthvað fleira sem ég get bætt í mínu daglega lífi. Njótið dagsins í dag, hann kemur ekki aftur.
 
Svava
Hæ Sigga

Mér finnst þetta verulega góðar hagfræðipælingar hjá þér og tek undir þetta með þér það er sannarlega búin að vera stígandi í þátttöku í neysluþjóðfélaginu.....
#1
11. janúar 2007 klukkan 21:53
Þetta er alveg rétt hjá þér Sigga. Svo fer mikið í taugarnar á mér þegar fólk talar bara eða mest um íslenskar landbúnaðarafurðir þegar talað er um matvælaverð á Ísl.
#2
12. janúar 2007 klukkan 18:07

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.