Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Þriðjudagur

09. janúar 2007 klukkan 14:10
Vaknaði klukkan sex í morgun, klæddi mig mjög vel og skellti mér út í frostið með hann Lubba minn. Hittum Teddu og gengum hringinn. Var komin inn heima hjá mér rétt fyrir klukkan sjö. Frábær byrjun!
Semsagt hreyfing dagsins: búin.
Dagurinn lítur svona út í matarlegu tilliti:
Mm: Brauðsneið, 1 tsk sulta, 75 gr kotasæla, banani, kaffi.
Hm: Brauðsneið, 1 egg, 50 gr túnfiskur, 30 gr majo, 300 gr grænmeti (tómatar+blómkál), kaffi
Sk: Melóna, kaffi.
Km: Hakk, 300 gr grænmeti (hakkaðir tómatar, laukur, hvítlaukur, sveppir - allt hitað í potti)
Kk: Appelsína, fjörmjólk

Að öðru....hafið þið séð halastjörnuna? Ekki ég enn!
Nei ég hef ekki séð halastjörnuna enn en var að reyna í gærkveldi.

Djö eruð þið Tedda duglegar. Matardagurinn hljómar mjög vel hjá þér, þetta er algjör snilld.

Kveðja Anna Lísa
#1
09. janúar 2007 klukkan 14:24
 
Þórunn
Alltaf sami krafturinn í þér Sigga mín þú klikkar ekki á þessu. Með þessu áframhaldi verður þú ekki í vandræðum með að ná markmiðunum þínum í vor. Líklega er þetta það sem maður verður að gera, að setja sér raunhæf markmið og stefna svo ótrauð á það - ætla að hugsa um þetta í dag...

Baráttukveðjur Þ.H.
#2
09. janúar 2007 klukkan 17:59
Hæ hæ ég varð aðeins að kíkja hingað inn aftur ;) ég tek undir með Þórunni þetta er mjög skynsamlega gert hjá þér Sigga, raunhæf markmið sem þú stefnir ótrauð á.

Kv ALH
#3
09. janúar 2007 klukkan 20:15
 
ssol
Sælar og gleðilegt ár þú er dugleg að halda áfram í ddv við erum að byrja aftur í Borgarnesi 30 jan ef næg þáttaka verður láttu þetta fréttast kveðja ssól
#4
10. janúar 2007 klukkan 03:40
 
Sigga Júlla
Takk fyrir þetta Sigrún, æðislegar fréttir:)
#5
10. janúar 2007 klukkan 17:11

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.