Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Jólin búin

08. janúar 2007 klukkan 02:37
Jæja, þá eru jólin formlega búin, kertasníkir farinn á heimaslóðir og  helgin senn á enda og ég hef staðið mig vel í að gera ýmislegt.......nema auðvitað að standa mig í danska..........nei, nei!

Skelltum okkur í bíó á föstudagskvöldið, sáum íslensku myndina "Köld slóð" það er fín mynd, urðum ekki svikin af henni.
Í gær, laugardag fórum við í göngutúr, á þrettándabrennu og fengum gesti í mat.
Í dag byrjuðum við daginn á að bruna suður að sækja Stefán, vorum komin aftur um kl eitt....í tæka tíð fyrir landsleikinn við dani. Tókum stuttan göngutúr,  síðan var jólaskrautið tekið niður og því pakkað ofan í kassa. Eigum reyndar eftir að taka útiseríurnar, gerum það næst þegar hlýnar. Nokkrir gestir ráku inn nefið....semsagt fín helgi.
Þá er best að taka vikuna 100% og vera endalaust bjartsýn Glottandi Ætla samt rétt að vona að það fari að koma auglýsing frá vigtarráðgjöfunum, þarf svo á því að halda að komast á fund......annars verð ég bara að vera dugleg á blogginu.
Hæ hæ Sigga mín. Ég er enn á lífi, ótrúlegt.

Ég vildi bara kasta á þig kveðju. Ég ætla að kíkja á þig á morgun ef þú verður heima eftir vinnu.
#1
08. janúar 2007 klukkan 04:03

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.