Góðan daginn
05. janúar 2007 klukkan 14:11
Hér er ég! Skellti mér til borgarinnar í gær, þræddi útsölurnar. Tveir bolir og ein peysa.....ekki var það mikið.......jú og ein jólasería....ekki má gleyma henni 
Stefán Snær fór líka en hann varð eftir hjá Stebba frænda sínum og þ.a.l. í fríi í skólanum í dag....það var ómögulegt annað en hann fengi að fara til þeirra og ekki síst fyrir ömmu hans að fá hann suður en það eru erfiðir tímar, lítil frænka Stefáns (dóttir föðurbróður hans) dó í fyrrinótt. Það skiptast á skin og skúrir hjá fjölskyldunni því það á að skíra tvo nýja fjölskyldumeðlimi á morgun....svona er lífið, eins og góð vinkona mín segir þá er bara tvennt sem við ráðum ekki það er líf og dauði, annað er val.
Gærdagurinn var svona 90%, borðaði ekki nóg í kvöldmatnum....enda ekki alveg besti staður að vera í Kringlunni í mat.
Eigið góðan dag, það ætla ég að gera!

Gangi þér vel dúllan mín.