Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

4. janúar

04. janúar 2007 klukkan 14:20

Mataræðið er bara alveg að gera sig hjá mér núna.....ég er samt kannski ekki alveg að ná að klára mjólkurskammtinn og eins fituna en þetta fer allt að koma....ætla að prenta út matardagbókarblað í dag því það gengur ekkert annað en að skrifa. Annars var saumó í gær og ég fékk mér snickersrjómagums þar og heitan og rétt og eitthvað fleira en ég hafði sparað, kvöldmatinn, 2 ávexti, mjólk og fitu. Borðaði rófufranskar áður en ég fór, þannig að þetta er ekki svo slæmt.

Ég er að jafna mig á þessu með hundinn.....þetta kemur allt, þurfum bara að vera ákveðin við hann og láta hann skilja það að hann er neðstur í virðingarröðinni á heimilinu.

Þórður Logi "týndist" í gær, fundum hann  inn í hundabúrinu í hrókasamræðum við Lubba, þegar hann vaknaði í morgun þá var hann fljótur að stika fram í þvottahús og inn í búrið.....þetta er svo mikið sport!

Þjóðmálaumræðan....hmhmhmhm hvað get ég sagt, hef misst af fréttum undanfarið....hef lítið sett mig inn í flugumferðarstjórnunarmálið......EN ég er á móti dauðarefsingum!!

Jamm ég held ég hafi ekki meira að segja í bili, nema jú eigum við ekki að vera bjartsýnar fyrir þetta ár? Vinna í okkur sjálfum og vera jákvæðar? Það held ég bara.

Ég á einmitt líka í vandræðum með að klára mjólkurskammtinn og fituskammtinn. Man stundum eftir því að ég megi fá mér DDV ís;)
#1
04. janúar 2007 klukkan 22:10
Bjartsýni og jákvæðni - styð það.

Kv. Guðrún Björk
#2
04. janúar 2007 klukkan 23:21

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.