Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

2. janúar 2007

02. janúar 2007 klukkan 14:27
Gleðilegt ár allir saman!
Takk fyrir samskipti, stuðning og vináttu á árinu sem er liðið.

Já á svona tímamótum sem áramót eru þá lítur maður gjarnan um öxl og hugsar með sér hvað maður gerði markvert á árinu sem er liðið. Það markverða sem ég gerði er í stuttu máli þetta.
Ég var móðir, húsmóðir og eiginkona þetta árið eins og áður.....náði að styðja eldri soninn í námi þannig að markmið náðust sem ég átti ekki von á strax. Ég var í fæðingarorlofi fyrri hluta ársins og náði því að eiga dýrmætar stundir með yngri syninum. Við fórum í ógleymanlega fjölskylduferð til Danmerkur í júní og síðan í matarklúbbsferð til Dublin. Við fengum okkur hvolp. Ég ákvað að gera eitthvað í mínum málum og skráði mig hjá íslensku vigtarráðgjöfunum og náði að losa mig við tæp 12 kg (eiginlega meira rúm 11 kg!!!) frá byrjun september til jóla.
Er þetta ekki bara ágætt, vona að þetta ár verði ekki síðra!

Hátíðirnar fóru mildum höndum um mig, við fórum norður í Skagafjörð þann 28. des og komum heim í gær. Þetta var yndislegt, nema eins og alltaf þá kemst maður ekki yfir að hitta alla sem maður hefði viljað hitta.
Áramótunum eyddum við síðan að Hólum í Hjaltadal í góðu yfirlæti hjá Sillu systur en þar komum við öll saman systkinin og mamma og pabbi.

Jæja látum þetta nægja að sinni, eigið góða vinnuviku.
 
Guðrún Kristín
Gleðilegt nýár.
Til hamingju með frábæran árangur.
Baráttulveðjur fyrir nýtt ár......
Stöndum saman ;)
#1
02. janúar 2007 klukkan 16:43
Gleðilegt nýtt ár krúsan mín.
Þú ert búin að vera alveg rosalega dugleg að ná af þér um 12 kg á 4 mán ....geri aðrir betur :))))
Gangi þér áfram svona vel.
Knús og kossar
#2
02. janúar 2007 klukkan 20:23
Gleðilegt nýtt ár.
Mikið eru búin að vera dugleg æðislegt.Ég sá þig á síðuni hjá spekopp og fór að lesa bloggið þitt.Ég er búin að vera í lægð síðan í april og búin að bæta svo mikið á mig en nú er mælirinn orðin fullur og er byurjuð aftur.Gerði mer áramótaheit.Má ég byðja þig um styrk til að hjálpa mer að byrja aftur.Það er allveg ótrúlegt hvað þetta blogg hjálpar mikið.Vona að það se í lagi að ég setji þig inn á tengill hjá mer.
Baráttukveðjur glingglo
Kristín Ósk
#3
02. janúar 2007 klukkan 21:24

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.