Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Játningar

27. desember 2006 klukkan 22:04

Jæja þá er fyrri umferð lokið í ofáti og sukkeríi!!
Síðustu 5-6 dagar hafa farið í vaskinn hjá mér.......ég borða sörur, lagtertu, konfekt, mat og drekk jólaöl, bjór og ég veit ekki hvað og hvað!! Grænmeti.....neeei.....hef alls ekki staðið mig. Afleiðingarnar, jú endalaus viðrekstur, svitaköst, bjúgur og slen!!!! OG MÉR VAR NÆR!!!!!!!!!!!!!!!!! Næstu dagar verða eitthvað skárri en þó ekki en við erum að fara norður í Skagafjörð í fyrramálið og komum aftur heim á nýársdag. Til að bæta eitthvað fyrir þetta þá fór ég í göngutúr áðan (stafgöngu) og svitnaði bara pínu. Reyndar er ágætt að fara norður því ef ég þekki systur mína rétt þá eigum við eitthvað eftir að þramma saman.....veit ekki hvort við komumst á skíði, líklega er snjórinn farinn ...... jamm líklega.
Þetta voru sannkölluð bókahól hjá okkur, við hjónin fengum 10 bækur samtals og Stefán Snær fékk eitthvað svipað, Þórður Logi fékk mikið af dóti sem heyrist í!!! Í fyrra fengum við eina bók saman og það var íslensk knattspyrna 2005........öfgarnar eru gríðarlegar!
Horfði á Blóðbönd í sjónvarpinu í gær....varð fyrri vonbrigðum, ekkert spes mynd .... finnst mér....en ég hef líka svo skrítinn smekk, hehehehe.
Jæja best að halda áfram að lesa Konungsbókina eftir Arnald, það finnst mér góð bók, ólíkt mörgum öðrum sem ég þekki og  hafa lesið hana......
Kvöldið: Elda fullan pott af tómatsúpu og spila fram eftir nóttu.

Svo þarf maður að upphugsa áramótaheit............

Úpphh já það er ekkert smá erfitt að borða þennan þunga mat...en hann er nú samt voða góður...hihi...búið að vera grænt reykský í kringum mig yfir hátíðarnar...hummm

Gleðileg jól...
#1
28. desember 2006 klukkan 18:05
Þú þarft ekkert að hafa samviskubit dúllan mín það eru bara einu sinni jól ;) á ári bara að byrja á fullu eftir þau , maður sleppir sér aldrei svo held ég:)))))) Gangi þér vel dúllan min og takk fyrir ómetanlegan stuðning á árinu sem er að líða:)))
#2
31. desember 2006 klukkan 02:19
Kannast við þetta allt saman; bjúgur, slen, leti og loftgangur. Ekki hefur farið mikið fyrir grænmetisáti frekar en hreyfingu undanfarna daga/vikur hjá mér.

En það þýðir ekki að horfa á það. Til hamingju með glæsilegan árangur á árinu sem er að líða og ekki síst með að hafa tekið skrefið og ákveðið að taka á málunum.

Kveðja Drekinn stóri
#3
31. desember 2006 klukkan 18:32
kannast við þetta og þá sérstaklega loftganginn;)
Nú verður engin miskunn!
#4
02. janúar 2007 klukkan 06:05

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.