Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Stjúpid ég!!

19. desember 2006 klukkan 14:32
Ótrúlegt hvað maður er eitthvað illa upplýstur.....það var sko þannig að það var Kompáss-þáttur á stöð 2 á sunnudagskvöldið síðasta - eins og eflaust flest allir hafa orðið varir við. Ég horfði ekki á þáttinn og hef ss ekkert verið að setja mig inn í málin (en hefði kannski betur gert það). Nema hvað að þegar umræðan var um þennan blessaðan forstöðumann í Byrginu þá varð mér að orði, ..."er þetta þessi Mummi í Götusmiðjunni?" ....semsagt ekki upplýstari en þetta!! Síðan var ég að lesa Moggann í gær og þá sé ég yfirlýsingu frá Mumma í Götusmiðjunni ........ málið er semsagt það að það var ekki bara ég sem hélt að Guðmundur í Byrginu og Guðmundur í Götusmiðjunni væri einn og sami maðurinn! Þetta eru tveir menn ekki einn og sami maðurinn. Og Götusmiðjan og Byrgið er ekki það sama.
Lærdómur: Kynna sér málin!! Fylgjast með!! Lesa, lesa, lesa!!!!
Fréttin er hér á mbl
 
Magga
*roðn*...ég get hér með upplýst að þú ert ekki sú eina sem hélt þetta!! Var alveg viss um að þetta væru einn og sami maðurinn! Guðmundur er náttúrulega mjög svo óalgengt nafn....

Kv. Magga...Guðmundsdóttir
#1
20. desember 2006 klukkan 06:37

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.