15. desember 2006 klukkan 18:00
Í dag er ég ekki nógu hress, kvefið sem fór að láta kræla á sér í fyrradag er að gera útaf við mig....held að það stefni í einn vænan sjúss af koníaki þegar ég kem heim í dag!!!!!
Annars gengur allt svona ágætlega.....svindlaði rosalega í kvöldmatnum í gær...fékk mér pizzu og brauðstangir!!! Nennti ekki að elda því ég var búin að gera brúna lagtertu (randalínu) og var komin með nóg af eldhússnúningum!!! Sé ekki eftir þessu, í kvöld ætla ég að elda þorsk, baka hann í ofni og setja slatta af osti og sveppum með og sýrðan rjóma og krydd....mmmmmm, rosagott. ![]()
Ég vildi að ég hafði þinn viljastyrk - mér finnst þú ofsalega dugleg - sérstaklega á þessum árstíma þegar freystingarnar eru ALLSSTAÐAR. En þú mátt sko alveg svindla smá - það finnst mér amk.