Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

- 300 grömm

06. desember 2006 klukkan 16:20
Þrjúhundruð grömm fóru þessa vikuna......ekki alveg eins og ég ætlaði mér en það verður bara að hafa það!
Nú eru vigtarráðgjafarnir komnir í frí í Borgarnesi og við verðum því að kíla á þetta sjálfar fram undir lok janúar þegar nýtt námskeið hefst (ef næg þáttaka verður).
Við vorum með veislu á fundinum í gær og það var bara æði....síðan verslaði ég nokkra dropa til að hafa í desertana um jólin. Nú á sko að taka á því!!!! Við vorum allar sammála um að við ætlum að standa okkur og vera frekar búnar að léttast meira en hitt þegar fundirnir byrja að nýju.
BERJAST STELPUR!! Hlæjandi

Svo í lokin þá er hér smá leikur að tölum.
Þrettán vikur eru síðan ég fór á fyrsta fundinn og ég hef misst 9,7 kg á þessum tíma, sem þýðir að ég hef misst 746 grömm að meðaltali á viku. Ég á eftir 10,9 kg að kjörþyngd sem þýðir að með sama áframhaldi þá ætti ég að vera komin í kjörþyngd eftir u.þ.b. 15 vikur .... sem er í kring um 20. mars!!!! Raunhæft....hmhm...nei held ekki! en 5 -6 kíló fyrir 20. mars, það er raunhæfara.
Best að hætta að þvæla þetta fram og til baka og snúa sér að vinnunni.....er kominn með allan hugan til Skotlands, jejejjej!
það er allavega ekki eftir þessi 300 gr.;) en ekki slæmt með tilliti til jólahlaðborðs og drykkju!!;) og heildarárangur náttúrlega flottur, gott að þú gleymir því ekki!!:)
#1
06. desember 2006 klukkan 19:34
 
Guðrún Kristín
Góðir hlutir gerast hægt, er það ekki sagt einhvers staðar?
Trúi því ;)
Við berjumst.........það er sko klárt .
#2
06. desember 2006 klukkan 20:54
Til hamingju með léttinginn..
þetta kemur allt með tímanum...ég setti mér mög háleitt markmið til að byrja með en svo hefur tíminn alltaf lengst og lengst og er ég alls ekkert ósátt við það því ég veit að ég er að gera allt sem ég get og þá getur maður ekki verið neitt annað en sáttur .....gangi þér bara vel yfir jólin :)
#3
06. desember 2006 klukkan 22:01

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.