Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

jóla, jóla

04. desember 2006 klukkan 14:38
Púff þá er þessi helgi búin! Hún einkenndist af áti, jamm og drykkju áfengra drykkja, jamm! Eins gott að við förum ekki nema á eitt jólahlaðborð, jamm!
Er að pæla í að hætta endanlega að smakka vín nema bara í rólegheitum heima hjá mér, hugs, hugs, jaaamm!!!!
Við fórum í Fossatún á jólahlaðborð, það lukkaðist vel, sérstaklega forréttirnir og rjúpusúpan mmmmmmm hún var æði. Sveitungarnir skemmtu það var mjög gaman að því. Semsagt mikið gaman og mikið fjör á jólahlaðborði.

Kransagerðin heppnaðist vel (sorry Ingibjörg), ég þarf að taka mynd af kransinum og skella hér inn við tækifæri.
Lítið af seríum rataði upp hjá mér um helgina, hins vegar fóru jólagardínurnar upp og aðventuljósin, þetta kemur allt saman.

Prófaði að baka eina ddv smákökusort í gær.....piparhnetur heitir hún, vantaði reyndar negulinn í en það orsakaði það að þessar kökur eru ekkert svakalega spes.....gengur betur næst!
Ath ég setti inn smá könnun....
#1
04. desember 2006 klukkan 17:12
já..jólahlaðborðin eru erfið..ég fer næstu helgi :o ég stefni á að prufa þessar piparhnetur næstu helgi..áttu einhverjar fleiri smákökuhugmyndir?
#2
04. desember 2006 klukkan 18:52
hahaha..var að lesa könnunina...þú ert mjög ákveðin í því að allir eigi að "lesa og borða"!!;)
#3
04. desember 2006 klukkan 18:54
hehehehe, já það er manni lífsnauðsynlegt að borða og lesturinn hmhm flestir lesa jólakortin!!! heheheh!
#4
04. desember 2006 klukkan 19:06
He he þú ert með þetta á hreinu grunnþarfirnar yfir jólin "borða og lesa"
#5
05. desember 2006 klukkan 04:34

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.