Bingó og ađventukransar
30. nóvember 2006 klukkan 14:34
Ég hef nú ósköp lítið að segja í dag. Ég ætla reyndar að brjóta daginn aðeins upp í vinnunni og fara í eina bændaheimsókn eftir hádegið. Síðan eru kvenfélagskonurnar með árlegt jólabingó í kvöld og þangað mæta allir Hvanneyringar og nærsveitamenn........já, já, alltaf nóg að gera hjá mér! Síðan er ekkert víst að ég komist til að blogga á morgun, ég fer nefnilega suður í fyrramálið í árlega KRANSAGERÐ ohhhh hlakka svo til. Það er semsagt orðin hefð síðan ég var í landbúnaðarháskólanum að við hittumst fjórar til að gera aðventukrans, við verðum reyndar því miður ekki allar en eftir því sem ég best veit þá verðum við þrjár. Þá hittumst við í Mosfelssdalnum hjá Elínu, fáum okkur kaffi og svona og brunum síðan í Garðheima að versla greni, kerti, borða og eitthvað skraut ef okkur vantar. Síðan hefjumst við handa með tilheyrandi sukki...hmhmhmhm já ég sagði sukki, það er alltaf slatti af slikkeríi og bakkelsi á borðum þennan dag en ég ætla nú að sleppa því og hef eitthvað hollt með mér 
Alltaf nóg að gera hjá mér..........best að fara að vinna!
p.s. Gleymi alltaf að þetta á víst að heita átaksblogg, mataræðisstjórnunin gengur vel
Alltaf nóg að gera hjá mér..........best að fara að vinna!
p.s. Gleymi alltaf að þetta á víst að heita átaksblogg, mataræðisstjórnunin gengur vel