Ný tala
Mínus áttahundruð grömm voru það heillin! Jamm þá vantar mig bara sexhundruð grömm til að ná tíu kílóa markmiðinu......jamm og ég hef heila 24 daga til þess! Nei að öllu gríni slepptu þá væri ég rosalega stolt ef ég næði því í næstu vigtun. Já og næsta vigtun er á þriðjudaginn kemur og það er lokavigtun þessa árs, því miður. Þá er bara að standa sig, fengum uppskriftir af fullt af smákökum á fundinum í gær og líka rauðkáli....ég er ein af þeim sem finnst ómissandi að sjóða rauðkál á Þorláksmessukvöld eða aðfangadag.
Það gengur semsagt allt voða vel í mataræðinu þessa dagana. ![]()
Ég er hins vegar á kafi í í vinnunni, þarf að gera eitthvað svo mikið í desember og janúar út af Skotlandsferðinni sem við erum að skipuleggja. Ég geri semsagt lítið annað en að hugsa um skosku hálöndin þesa dagana hérna eru tveir staðir sem ég er sérstaklega spennt að skoða Aigas og Glen Affric. Gaman, gaman!
Svo er eitt mál sem ég vil koma að en það eru virkjanamál. Ég skora á ykkur, sem hafið áhuga, að kynna ykkur fyrirhugaða virkjun Jökulsánna í Skagafirði á þessari síðu hér. Þarna getið þið skráð ykkur á lista "Við segjum NEI" sem er vinstra megin á spássíunni á þessari síðu. Ég er semsagt alfarið á móti þessum áformum....og þá vitið þið það! ![]()
Njóttu aðventunnar og jóla jóla.... Ég svitna bara við tilhugsunina um alla þessa "jólatruflun" í augnablikinu..... Finn ekki alveg skiptigírinn á milli námsstressins og "julehygge" En ég reyni ;o)
Bestu kveðjur
Hanna Dóra